Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. júlí 2026 16:11 Stjörnustelpur og ferðatöskur þeirra á flugvellinum í Gautaborg sem þær hafa kynnst alltof vel undanfarin sólarhring. Heimferð fótboltakrakka og aðstandenda þeirra úr Garðabæ og Akureyri eftir fótboltamót í Gautaborg hefur enn frestast vegna vandræðagangs Icelandair við að fljúga hópnum heim. Foreldrar hrósa viðhorfi barnanna en eru hugsi yfir vinnubrögðum flugfélagsins.
Fótboltamótið Gothia Cup er haldið ár hvert í Gautaborg í Svíþjóð og er fastur liður íslenskra knattspyrnuliða. Stjarnan úr Garðabæ og Þór/KA sendu stelpulið og Þór strákalið sem áttu bókað flug heim á sunnudagskvöld eftir vel heppnaða vikudvöl í sænsku borginni. Hulda María Stefánsdóttir er liðsstjóri hjá Garðabæjarstelpunum en hópurinn telur 48 manns að liðsstjórum og þjálfurum meðtöldum. Lagði út átta hundruð þúsund krónur Hulda María lýsir því að hópurinn hafi mætt út á Gautaborgarflugvöll klukkan þrjú síðdegis í gær. Ekki vildi betur til en svo að bilun í flugvél olli því að fluginu var frestað til dagsins í dag. Hulda María segir að sem betur fer hafi verið laus herbergi fyrir hópinn á flugvallarhóteli. Ein móðirin hafi lagt út rúmlega átta hundruð þúsund krónur fyrir hópinn. Aftur var haldið út á völl í dag á öðrum tímanum en fara átti í loftið klukkan fjögur. Þegar hópurinn var að tékka sig inn bárust skilaboð um seinkun á fluginu til átta í kvöld. Í framhaldinu bárust skilaboð um að klára þyrfti að tékka sig inn svo hópurinn gerði það samviskusamlega og var á flugvellinum að stytta sér stundir með öllum tiltækum ráðum þegar önnur tilkynning barst. Heimfluginu hafði verið seinkað til hálf tíu í kvöld. Hulda María segir stelpurnar og fylgifiska hafa fengið hundrað sænskar krónur í tvígang á meðan á biðinni hafi staðið en hundrað sænskar krónur eru um 1300 krónur íslenskar sem dugi ekki fyrir miklu á flugvelli. Það jók ekki stemmninguna á flugvellinum þegar þau tíðindi bárust á meðan Hulda María ræddi við blaðamann Vísis að kvöldfluginu hefði verið frestað. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir nema að flugið verður ekki í dag. Við tekur kunnuglegt verkefni, að finna gistingu fyrir hópana ytra yfir nótt án aðkomu Icelandair og leggja út himinháa upphæð fyrir allan hópinn. Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair harmar málið í samtali við Vísi. Fluginu í gær hafi verið aflýst vegna smávægilegrar bilunar. Ákveðið hafi verið að láta farþega leggja út fyrir gistingu en það sé metið í hvert sinn þegar svona aðstæður komi upp. Varahluturinn hafi svo borist í dag en það hafi því miður verið rangur varahlutur. Guðni sagði verið að meta stöðuna og sjá hvaða möguleikar væru í boði fyrir fótboltakrakkana og fylgdarlið þeirra. Stelpurnar úr Garðabænum eru tólf til fjórtán ára. Sumar hafa aldrei ferðast til útlanda án foreldra inn áður. Hulda María segir þær hafa verið ótrúlega brattar og duglegar. Fararstjórarnir geri sitt besta til að hafa ofan af fyrir þeim. Hluti af þeirri lausn sé óumflýjanlegur ótakmarkaður símatími sem nýtist meðal annars í leik þar sem ein mamman tekur myndir í flugstöðinni og stelpurnar reyna að taka myndir af sömu stöðum. Strandaglóparnir bíða eftir upplýsingum frá Icelandair um hvort hópurinn komist heim á morgun og þá með hvaða leiðum. Hulda María segir að gott væri að hópur á borð við þeirra hefði tengilið hjá flugfélaginu í svona tilvikum. Uppfært klukkan 16:14 Hópurinn hefur fengið þau skilaboð að stefnt sé á flug heim klukkan 1:20 í nótt að sænskum tíma. Verið sé að senda flugvél frá Íslandi eftir hópnum. Stefnt sé á lendingu á Keflavíkurflugvelli á þriðja tímanum að íslenskum tíma. Þá tekur við stutt ferðalag í Garðabæinn fyrir Stjörnustúlkur en öllu lengri bíltúr fyrir stelpurnar að norðan. Guðni upplýsingafulltrúi bætir við að það hafi raunar ekki verið þannig að rangur varahlutur hafi verið pantaður heldur hafi viðgerð tekið lengri tíma en búist var við og panta hafi þurft annan varahlut til viðbótar.
Icelandair Flug Svíþjóð Stjarnan Þór Akureyri KA Íslendingar erlendis Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Fleiri fréttir Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent