Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. júlí 2026 13:12 Rapparinn Desiigner hefur í tvígang komist í kast við lögin síðustu mánuði. Rapparinn Desiigner hefur enn á ný komist í kast við lögin eftir að hafa verið handtekinn og ákærður fyrir heimilisofbeldi og eignaskemmdir. Rapparanum er gefið að sök að hafa elt konu vopnaður hamri, mölbrotið síma hennar og hrint henni í gólfið.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá málinu en þar kemur fram að rapparinn, sem heitir réttu nafni Sidney Royel Selby III, hafi verið færður bak við lás og slá í Suður-Karólínu á þriðjudaginn og sé enn í haldi. Staðarmiðillnin WBTW fjallaði um málið í gær en þar segir að lögreglan í Horry-sýslu hafi handtekið Selby og hann sé kærður fyrir heimilisofbeldi og fyrir eignaskemmdir í þremur liðum að andvirði á bilinu tvö þúsund til tíu þúsund Bandaríkjadala (milli 250 þúsund til 1,25 milljón króna). Rapparinn Desiigner með Kanye West á MTV-verðlaunahátíðinni 2016.Getty/Kvein Mazur Atvikið átti sér stað á þriðjudaginn í heimahúsi í borginni Conway eftir að rapparinn lenti í rifrildi við konu vegna sjónvarps sem hann hafði tekið af vegg í húsinu. Konan sagði við lögreglu að Selby hefði tekið síma hennar og brotið þá með hamri sem varð til þess að hún yfirgaf heimilið með barn í fanginu og leitaði skjóls hjá nágrönnum. Áður en hún komst þangað hafi hann kastað henni í jörðina en henni tekist að koma sér á fætur og læsa sig inni á baðherbergi nágrannanna. Á meðan hafi Selby notað hamar og skrúfjárn til að vinna skemmdir á bílum nágrannanna. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Selby kemst í kast við lögin, í mars síðastliðnum var hann handtekinn vegna meints heimilisofbeldis gegn barnsmóður sinni en var sleppt úr haldi gegn tryggingu. Þremur árum fyrr var rapparinn handtekinn í flugvél á leið frá Tokyo til Minneapolis fyrir að hafa fróað sér hamslaust um borð. Hann sagðist þá hafa verið í andlegu ójafnvægi eftir að hafa tekið lyf og lýsti því yfir að hann hyggðist leita sér hjálpar. Desiigner kom sér fyrst á kortið árið 2016 þegar hann gaf út smellinn „Panda“ sem var síðan samplað í „Father Stretch My Hands Pt. II“ með Kanye West. Síðan þá hefur honum gengið bagalega á sviði tónlistarinnar.
Erlend sakamál Bandaríkin Tónlist Tengdar fréttir Panda kemst óvænt á topp Billboard-listans Hinum 18 ára gamla Desiigner hefur tekist að vekja mikla athygli á skömmum tíma. 27. apríl 2016 10:00 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira
Panda kemst óvænt á topp Billboard-listans Hinum 18 ára gamla Desiigner hefur tekist að vekja mikla athygli á skömmum tíma. 27. apríl 2016 10:00