Stórbrotinn stíll Zendayu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. júlí 2026 14:00 Zendaya ber af í klæðaburði. Getty Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega.
Zendaya er fædd árið 1996 og á að baki sér glæsilegan feril sem hófst snemma hjá Disney. Hún fór með aðalhlutverkið í vinsælu þáttunum Euphoria og hefur leikið í stórmyndum á borð við Dune, The Challengers og Spider Man seríunni þar sem hún leikur á móti eiginmanni sínum Tom Holland. View this post on Instagram A post shared by Zendaya (@zendaya) Zendaya hefur alltaf vakið athygli þegar hún er á kynningarferðalagi fyrir kvikmyndir sínar og tekur þema hverrar myndar alvarlega. Hún hefur unnið náið með stjörnustílistanum Law Roach nánast frá upphafi ferils síns og tvíeykið galdrar fram hverja listrænu snilldina á fætur annarri. View this post on Instagram A post shared by Law Roach (@luxurylaw) Zendaya er nú á ferðalagi að kynna stórmyndina Odyssey þar hún fer með stórt hlutverk ásamt leikurunum Elliot Page, Tom Holland, Matt Damon, Anne Hathaway og fleiri góðum. Kvikmyndin sækir í grísku söguna um Ódysseif og því ekki að undra að Zendaya sé undir grískum innblæstri í klæðaburðinum. View this post on Instagram A post shared by Schiaparelli (@schiaparelli) Í gær gerði hún sér lítið fyrir og rokkaði stórglæsilegan skúlptúr-kjól frá franska tískuhúsinu Schiaparelli. Ekki nóg með það þá voru einungis örfáar klukkustundir liðnar frá því að kjóllinn var í fyrsta skipti sýndur á tískuvikunni í París. Kjóllinn var sendur í snatri beint af tískupallinum til London með einkaþotu. Schiaparelli hefur fest sig í sessi sem eitthvað frumlegasta tískuhús sögunnar og sýningin vakti mikla athygli. Til að toppa þetta bætti Zendaya demantshálsmeni við og flétturnar í hári hennar minntu á kórónu. Zendaya í stórglæsilegum Schiaparelli kjól sem var sendur til hennar með einkaþotu. Ian West/PA Images via Getty Images Kjóllinn var hinn glæsilegasti á stjörnunni við kvikmyndahúsið á Leicester torginu í London og gengur sömuleiðis á batteríi þar sem pilsið lýsist upp. Það var þó ekki nóg að klæðast einungis einu fitti. Áður en myndin var sýnd skipti Zendaya nefnilega í líklega aðeins þægilegri bíókjól, sem er sömuleiðis splunkunýr af tískupallinum frá elegant tískuhúsinu Valentino. Kjóllinn sækir greinilega innblástur í gríska arfleifð, sannkallaður gyðjukjóll með grænum laufum yfir brjóstin og flæðandi ljósgráu pilsi. Við þetta skartaði hún svo 27 karata demöntum sem héngu úr eyrum hennar. Zendaya hér í grískum gyðjukjól frá franska tískuhúsinu Valentino. Ian West/PA Images via Getty Images Á sunnudaginn mætti hún á blaðamannafund í sérsaumuðum hvítum gyðjukjól frá töffara-hátískumerkinu Jacquemus. Hún paraði hvítt lítið höfuðfat við kjólinn og risa gyllta eyrnalokka. Óaðfinnanleg að vanda. Zendaya í Jacquemus. Shane Anthony Sinclair/Getty Images
Tíska og hönnun Hollywood Bíó og sjónvarp Bretland Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira