Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2026 21:03 Jórdanski dómarinn Adham Makhadmeh þótti ekki sýna mikla fagmennsku á samfélagsmiðlum sínum eftir leik Englands og Kongó. Getty/Richard Pelham Jórdanski dómarinn Adham Makhadmeh hefur hneykslað marga með samfélagsmiðlafærslu sinni eftir leikinn sem hann dæmdi í 32 liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.
Makhadmeh dæmdi leik Englands og Kongó þar sem Kóngómenn voru yfir í næstum því sjötíu mínútur áður en Harry Kane skoraði tvö mörk undir lok leiksins. Þeir sem sáu leikinn sáu greinileg látalæti í þessum dómara í leiknum sjálfum þar sem hroki hans og stælar fóru ekki fram hjá sjónvarpsáhorfendum. Makhadmeh virðist líka vera einstaklega ánægður með gula spjaldið sem hann gaf Jude Bellingham strax á 19. mínútu leiksins. Dómarinn birti ekki eina mynd af sér að „bóka“ Bellingham heldur þrjár slíkar. Hann var augljóslega stoltur af því að spjalda eina af stærstu stjörnum enska landsliðsins. Netverjar hafa gert mikið grín að þessu á samfélagsmiðlum enda allt annað en dæmi um mikla fagmennsku. Makhadmeh gaf engum öðrum leikmanni enska landsliðsins gult spjald en Kongómaðurinn Noah Sadiki fékk að líta gula spjaldið níu mínútum síðar. Makhadmeh er 39 ára gamall og hefur verið FIFA-dómari síðan 2013. Þetta var hans þriðji leikur á HM en hann dæmdi líka markalaust jafntefli Spánar og Grænhöfðaeyja sem og 5-1 sigur Belgíumanna á Nýja-Sjálandi. View this post on Instagram A post shared by Rising Ballers (@risingballers)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Real Betis - Real Madrid | Heldur Real Madrid sigurgöngunni áfram? Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Sjá meira