Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 10:31 Blikar mættu mjög grimmir til leiks í bikarleiknum og létu Víkinga finna vel fyrir sér. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Víkingar og Blikar mættust tvisvar með nokkurra daga millibili og úrslitin voru mjög ólík. Breiðablik sló topplið Víkinga út úr Mjólkurbikarnum um helgina og strákarnir í Stúkunni ræddu í gær viðtölin sem Víkingar fóru í eftir stórsigur í deildarleiknum fjórum dögum fyrr.
Víkingar burstuðu Blika 4-1 en voru mjög óánægðir með frammistöðu sína eftir leikinn. Nokkrum dögum síðar unnu Blikar bikarleik liðanna 3-0 og enduðu um leið möguleika Víkinga á því að vinna tvöfalt í sumar. Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, spurði kollega sinn Halldór Árnason, fyrrum þjálfara Blika, hvaða áhrif þessi viðtöl hefðu á Blikana. „Auðvitað voru Víkingarnir að gefa Breiðabliki blóð á tennurnar með þessum viðtölum fyrir næsta leik. Ég myndi alveg hugsa mig tvisvar um áður en ég færi í þessi viðtöl og Blikar hafa hundrað prósent spilað þessi viðtöl enda mætti Breiðablik með miklu meiri kraft í seinni leikinn,“ sagði Halldór Árnason. „Hins vegar er það alveg rétt að Víkingar að þeir voru ekkert sérstakir í þessum leik,“ sagði Halldór. Halldóri finnst líka Víkingar hafa tekið of mikla áhættu með því að taka lykilmenn eins og Gylfa Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson og Valdimar Þór Ingimundarson út úr byrjunarliði sínu fyrir bikarleikinn. „Við vitum niðurstöðurnar, úrslitin og allt þetta en ég hefði ekki farið í þessi viðtöl og ég held að það væri skynsamlegt að dreifa þessum róteringum á fleiri leiki. Þeir eru sannarlega búnir að hafa leikina til að rótera,“ sagði Halldór. „En ég held bara að Víkingar hafi séð fyrir sér hið fullkomna tímabil. Vinna deild, vinna bikar, alla leið í Evrópu. Nú er eitt af þessu farið og þeir voru ógeðslega óheppnir með drátt í Evrópu. Þetta er fljótt að breytast,“ sagði Halldór. Það má horfa á alla umfjöllunina hér fyrir neðan. Klippa: Stúkan: Víkingar gáfu Blikum blóð á tennurnar með þessum viðtölum
Besta deild karla Mjólkurbikar karla Víkingur Reykjavík Breiðablik Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira