„Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Freyja Þórisdóttir skrifar 28. júní 2026 15:54 Palli og Antonio aðstoðuðu bæjarbúa á Flateyri við að mála regnbogafána á bæjarhátíð síðasta föstudag, þann 26. júní, sem er sömuleiðis afmælisdagur Antonio. Facebook/Páll Óskar Eiginmaður poppstjörnunnar Páls Óskars, Edgar Antonio Luena Angarita, átti afmæli síðasta föstudag, þann 26. júní, en í stað þess að dagurinn snerist um ekkert nema gleði og hamingju fylgdust þeir Páll og Antonio með fréttum af fjölskyldu Antonio, sem býr í Venesúela. Þar hefur tala látinna hækkað sífellt síðustu sólarhringa í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku sem lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst.
Í færslu sem Páll Óskar Hjálmtýrsson birti í dag á Facebook-síðu sinni lýsir hann því hvernig „sumir dagar geti verið erfiðir, krefjandi og fullir af þversögnum“ en afmælisdagur eiginmanns hans, Antonio, síðasta föstudag hafi litast af hamförum hinum megin í heiminum. „Antonio, maðurinn minn, átti afmæli föstudaginn 26. júní og við áttum dásamlega stund á Flateyri þar sem við fengum að aðstoða bæjarbúana við að mála regnbogafána á bæjarhátíð,“ skrifar Páll. Hann sagðist í samtali við blaðamann fréttastofu ekki hafa neinu að bæta við færsluna en gaf góðfúslegt leyfi fyrir því að vitnað væri í hana. Dauðhræddir á refresh-takkanum Á sama tíma hafi þeir fylgst grannt með fréttum af fjölskyldu Antonio á milli vonar og ótta en fjölda fólks er enn saknað eftir jarðskjálftana tvo sem riðu yfir í vikunni og mældust 7,2 og 7,5 að stærð. Þetta eru af mörgum taldar einar hryllilegustu náttúruhamfarir sem skollið hafa á venesúelsku þjóðinni í yfir hundrað ár. „Það gekk illa að ná sambandi við fjölskyldu Antonios og við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina,“ skrifar Páll en bætir svo við seinna í færslunni að „til allrar hamingju er fjölskylda Antonios heil á húfi og húsin þeirra standa enn. Það sama verður ekki sagt um aðra sem fjölskyldan þekkir“. Hann lýsir því jafnframt hvernig hann hafi verið á „fleygiferð“ um landið frá fimmtudegi til laugardags og troðið upp í Hveragerði, Flateyri og Borgarnesi en að þessi gigg um helgina hafi bjargað geðheilsu þeirra beggja. „Hér fékk ég að finna það á eigin skinni að tónlist er drottning listanna. Hún getur í alvörunni lyft andanum og sálartetrinu jafnvel undir svona krefjandi kringumstæðum. Þótt ég sé ekki í neinu stuði til að stíga á svið, þá gerist einhver galdur um leið og ég fæ míkrófón í hendurnar og finn orkuna frá áhorfendunum,“ skrifar Páll og nýtir tækifærið til að þakka áhorfendum sínum fyrir „að hafa lyft geði mínu alla helgina“. Sýna kærleika í verki Þá vekur hann athygli á því að hamfarirnar í Venesúela hafi dunið á almennum borgurum í kjölfar annarra hamfara. „Þær hamfarir eru af mannavöldum. Stjórnvöld í Venesúela gera ekki baun til að hjálpa neinum. Þvert á móti koma þau í veg fyrir hjálparstarf almennra borgara. Þú last rétt. Venjulegt fólk er að reyna að lyfta steinsteypu með berum höndum af samborgurum sínum, því það berst engin hjálp frá þeirra eigin yfirvöldum,“ skrifar Páll og tekur fram að alþjóðasamtök hafi verið fyrr mætt á svæðið en venesúelsk yfirvöld. „Skiljið þið núna hvers vegna 7 milljónir íbúa hafa kosið að flýja Venesúela á undanförnum árum?“ Hann biðlar til allra þeirra sem lesa pistilinn að styrkja hjálparsamtök á borð við Rauða krossinn og Unicef. Það sé til dæmis hægt að styrkja Unicef um þrjú þúsund krónur með því að hringja í 907-3016. „Sýnið kærleika í verki, takk.“
Eldgos og jarðhræringar Venesúela Náttúruhamfarir Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Fann ástina í faðmi flóttamanns frá Venesúela Páll Óskar Hjálmtýsson, poppgoðsögn Íslands, er trúlofaður. Hann greindi tónleikagestum frá því á aðventutónleikum um helgina og sagðist hlakka til fyrstu jólanna með ástinni sinni. 6. desember 2023 12:30 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Sjá meira
Fann ástina í faðmi flóttamanns frá Venesúela Páll Óskar Hjálmtýsson, poppgoðsögn Íslands, er trúlofaður. Hann greindi tónleikagestum frá því á aðventutónleikum um helgina og sagðist hlakka til fyrstu jólanna með ástinni sinni. 6. desember 2023 12:30