Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2026 11:37 Nancy Guthrie hvarf af heimili sínu í lok janúar síðastliðnum. Bandaríska alríkislögreglan hefur birt myndir af grímuklæddum manni úr öryggismyndavél á heimili Guthrie. Getty Í skilaboðum frá meintum mannræningjum Nancy Guthrie, móður bandarísku sjónvarpskonunnar Savannah Guthrie, er fullyrt að Nancy sé látin. Hún hafi látist fyrir slysni og biðjast mannræningjarnir þar afsökunar.
BBC segir frá þessu en hin 84 ára Nancy var flutt á brott af heimili sínu í Tuscon í Arisóna í janúar síðastliðnum. Skilaboðin sem um ræðir voru ein tveggja sem send voru fjölskyldu Guthrie og til ákveðinna fjölmiðla dagana eftir mannránið. Áður hefur verið greint frá skilaboðunum frá mannræningjunum en erlendir fjölmiðlar greina fyrst nú frá innihaldi þeirra. Í fyrri skilaboðunum kröfðust mannræningjarnir þess að fá greiddar margar milljónir í bitcoin í lausnargjald. Í þeim síðari – sem send voru 6. febrúar – er ekki farið fram á neinar fjárhæðir, heldur er þar beðist afsökunar og greint frá því að Nancy hafi látist fyrir slysni. Enn hefur ekki tekist að finna Nancy. Lögreglustjóri Pima-sýslu segist í samtali við erlenda fjölmiðla ekki vilja tjá sig um fréttirnar en tekur fram að rannsóknin standi enn yfir. Nancy hvarf sporlaust eftir að aðstandendur höfðu skilað henni heim til sín síðasta dag janúarmánaðar. Fjölskylda Nancy fór svo að hafa áhyggjur af afdrifum hennar eftir að hún skilaði sér ekki til messu daginn eftir. Skilaboðin frá meintum mannræningjum voru stíluð á dóttur Nancy, Savannah Guthrie, sem er annar þáttastjórnenda Today show á NBC.
Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Lögreglan í Arizona handtók í nótt einstakling og færði til yfirheyrslu vegna hvarfsins á hinni áttatíu og fjögurra ára gömlu Nancy Guthrie sem vakið hefur gríðarlega athygli vestanhafs og víðar. 11. febrúar 2026 08:33 FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur birt myndir af grímuklæddum einstaklingi í tengslum við leit þeirra að móður fréttaþulunnar Savannah Guthrie. Í tilkynningu með myndunum kemur fram að yfirvöld reyni nú að bera kennsl á einstaklinginn, sem þau segja hafa verið vopnaðan. 10. febrúar 2026 18:47 Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Bandaríska sjónvarpsstjarnan Savannah Guthrie ætlaði að vera á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu og lýsa setningarhátíð Ólympíuleikanna í kvöld. Ekkert verður af því. 6. febrúar 2026 06:30 Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Savannah Guthrie, sjónvarpskona hjá NBC í Bandaríkjunum, gaf í gær út yfirlýsingu þar sem hún bað þann eða þá sem rændu 84 ára gamalli móður hennar á dögunum, um staðfestingu þess að hún væri á lífi. Ekkert svar hefur borist enn. 5. febrúar 2026 13:35 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Lögreglan í Arizona handtók í nótt einstakling og færði til yfirheyrslu vegna hvarfsins á hinni áttatíu og fjögurra ára gömlu Nancy Guthrie sem vakið hefur gríðarlega athygli vestanhafs og víðar. 11. febrúar 2026 08:33
FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur birt myndir af grímuklæddum einstaklingi í tengslum við leit þeirra að móður fréttaþulunnar Savannah Guthrie. Í tilkynningu með myndunum kemur fram að yfirvöld reyni nú að bera kennsl á einstaklinginn, sem þau segja hafa verið vopnaðan. 10. febrúar 2026 18:47
Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Bandaríska sjónvarpsstjarnan Savannah Guthrie ætlaði að vera á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu og lýsa setningarhátíð Ólympíuleikanna í kvöld. Ekkert verður af því. 6. febrúar 2026 06:30
Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Savannah Guthrie, sjónvarpskona hjá NBC í Bandaríkjunum, gaf í gær út yfirlýsingu þar sem hún bað þann eða þá sem rændu 84 ára gamalli móður hennar á dögunum, um staðfestingu þess að hún væri á lífi. Ekkert svar hefur borist enn. 5. febrúar 2026 13:35