„Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Freyja Þórisdóttir skrifar 22. júní 2026 23:32 Svanhildur Hjaltadóttir var í göngutúr með son sinn sem er rétt um eins og hálfs árs við Ásgarð í Mosfellsbæ þegar atvikið átti sér stað. Aðsend/Vísir/Vilhelm Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn. „
Ég fékk tilfinningu, bara ókei, það er eitthvað að fara að gerast, þetta var rosalega skrítið. Svo gríp ég hann upp á öxlina og byrja að hlaupa en svo koma þeir niður eiginlega á eftir mér,“ segir Svanhildur Hjaltadóttir, fyrirsæta, í samtali við blaðamann Vísis. Hún ítrekar að strákarnir hafi brugðist eins vel við og þeir gátu og að þeir hafi hrópað til hennar um leið og þeir sáu hana. Sjálf var hún „á vappinu á stígnum“ ásamt syni sínum, sem er rétt um eins og hálfs árs gamall, en hún segir að þarna vanti skýrar merkingar. Ekki sé augljóst hvort að stígurinn sé hugsaður fyrir gangandi vegfarendur, hestafólk eða hjólara. Svanhildur skorar á sveitarfélagið að skoða hvort þörf sé á að setja upp viðvörunarskilti þarna sem minnir á að sýna aðgát og aka miðað við aðstæður.Vísir/Vilhelm „Þarna er blönduð umferð af börnum, gangandi fólki og hestafólki, og eitt augnablik getur skilið á milli þess að allt fari vel eða að alvarlegt slys verði,“ segir hún og tekur fram að hún telji strákana vera í fullum rétti enda sé líklega ekkert þeirra klárt á því hvort þarna megi vera á hjólum eða ekki. Gáfu henni dýrmæt augnablik „Þeir brugðust alveg rétt við, þeir voru örugglega jafn hissa og ég, vissu ekkert að þeir ættu ekki að vera á hjólum og ég vissi ekki að ég ætti ekki að vera með barnið mitt þarna uppi,“ segir Svanhildur og bætir við að hún hafi kennt sjálfri sér svolítið um, „af hverju ég væri að fara þarna upp með barnið mitt“. Hún segir drengina hafa verið á talsverðri ferð niður brekkuna en að þeir hefðu lítið annað geta gert en að vara hana við með hrópum og köllum. Aðspurð segir hún þá ekki hafa staldrað við og athugað með hana. „Ég held þeir hafi bara orðið smeykir eða eitthvað en mig langar samt bara að þakka þeim fyrir hvað þeir voru flottir og hvað þeir brugðust strax við. Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið.“
Mosfellsbær Hjólreiðar Slysavarnir Göngugötur Börn og uppeldi Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira