Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. júní 2026 10:57 Jensína Edda Hermannsdóttir, Reykvíkingur ársins 2026 og Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri á bökkum Elliðaár í morgun. Jensína Edda Hermannsdóttir leikskólastýra Laufásborgar er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun en þangað voru þær Jensína mættar eldsnemma við formlega opnun árinnar í dag.
Í tilkynningu frá borginni segir að Hildur hafi sagt við tilefnið að ánægjulegt væri að heiðra svo öflugan eldhuga og frumkvöðul í skólamálum sem sannarlega hefði snert líf margra fjölskyldna í borginni síðastliðnu tvo áratugi. Að lokinni hressingu og spjalli héldu Jensa og Hildur ásamt veiðileiðsögumanni á Breiðuna. Þar renndi Jensa fyrir laxi í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 87 ár. Í ár var líkt og fyrri ár óskað eftir tilnefningum um einstaklinga sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Í tilkynningu borgarinnar segir að eftir yfirferð á tilnefningum hafi verið tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu titilinn, þar hafi komið fram að Jensína, eða Jensa eins og hún er ávallt kölluð, væri þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi. Hún væri lausnamiðuð og starfaði af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum. Jensína, Reykvíkingur ársins við veiðar ásamt leiðsögumanni á Breiðunni í Elliðaánum í morgun. Jensa hafi helgað líf sitt því að standa með börnum og fjölskyldum þeirra. Á Laufásborg eru öll sem þar vinna í barnastarfi og engin eiginleg skrifstofa. „Við erum þar sem börnin eru,“ er haft eftur Jensu, en hún hefur sjálf tekið þátt í dagskránni með börnunum síðan á síðustu öld. Jensa segir að á Laufásborg starfi samstilltur og metnaðarfullur hópur sem hafi unnið lengi saman, til dæmis starfi þar fjórir kennarar með samanlagt 100 ára starfsreynslu og mörg með tuttugu ár. „Þetta starf er galdur og það heldur okkur á tánum. Það sem þú þarft að hafa er þinn innri styrkur og þú þarft að hafa sjálfstraust í þetta og vera vel meinandi manneskja sem trúir því að kærleikurinn sé besti leikurinn. Við erum hér á Laufásborg að lyfta og grípa hvort annað alla daga og trúum því að gleði sé fagmennska. Laufásborg starfar eftir Hjallastefnunni og í janúar á þessu ári tóku kennarar við rekstrinum og stofnað var félag sem heitir Hamingjuhöllin ehf. með vísan í það að Laufásborg er oft í daglegu tali nefnd Hamingjuhöllin,“ er haft eftir Jensu í tilkynningu. Jensa með urriðann og að sjálfsögðu fengu börnin að mæla fiskinn sem reyndist 30 sentmetrar að lengd. Að lokinni mælingu var honum sleppt. Þar segir að það hafi komið Jensu mjög á óvart að hún hafi verið valin og sagðist varla trúa sínum eigin eyrum. Það væri henni mikill heiður að fá útnefninguna fyrir ævistarfið sitt. „Ég er mjög þakklát á hverjum degi að hafa valið þetta í lífinu. Að vera kærleiksrík manneskja og vilja láta gott af sér leiða er lykilatriði og að standa sterk. Ég tek við þessari dýrmætu viðurkenningu fyrir hönd okkar allra sem stöndum að Laufásborg, við erum eins og ein fjölskylda,“ er haft eftir Jensu.
Tímamót Reykjavík Skóla- og menntamál Leikskólar Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira