Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. júní 2026 12:13 Loftmynd af hönnun nýju Þjóðarhallarinnar. stjórnarráð Íslands Samkeppnisútboði um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar er lokið. Tilboð Íslenskra aðalverktaka upp á 16,8 milljarða króna var samþykkt. Myndir og myndbönd af hönnuninni má finna hér fyrir neðan.
Þjóðarhöllin er íþróttamannvirki sem á að rísa í Laugardal í Reykjavík, sunnan svæðisins þar sem Laugardalshöll stendur. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með málið fyrir hönd ríkisins með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir annaðist útboðsferlið. Framkvæmdanefnd Þjóðarhallar hóf störf árið 2022 og stefnt var að því að ljúka framkvæmdum árið 2025 en það hefur frestast. Þrjú teymi voru valin til þátttöku í samkeppnisútboði um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í desember 2024. Nú, um einu og hálfu ári síðar, liggja niðurstöður fyrir. „Í lokavalinu stóð teymi Íslenskra aðalverktaka hf. ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Ísloft, EOH og Landhönnun uppi sem sigurvegari. Tilboðið er að fjárhæð 16,8 milljarða króna, með virðisaukaskatti. Tækifæri til hagræðingar eru til staðar samhliða samningagerð og fullnaðarhönnun án þess að breyta kröfum um gæði og notagildi. Ný Þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla... Samkvæmt reglum opinberra innkaupa stendur nú yfir lögbundinn biðtími þar sem tilboðsgjöfum gefst kostur á að kynna sér niðurstöðuna og eftir atvikum gera athugasemdir eða bera ákvörðunina undir kærunefnd útboðsmála áður en heimilt er að ganga frá samningi. Að samningsgerð lokinni hefst undirbúningur framkvæmda,“ segir á vef Stjórnarráðs Íslands. Myndband af hönnun Þjóðarhallarinnar má finna í spilaranum að ofan. Myndir af hönnuninni má sjá hér fyrir neðan. Norðvestur inngangur væntanlegrar Þjóðarhallar. stjórnarráð Íslands Aðalsalur. stjórnarráð Íslands Suðvestur inngangur. stjórnarráð Íslands Forsalur. stjórnarráð Íslands Inngarður. stjórnarráð Íslands Önnur mynd af aðalsal Þjóðarhallar. stjórnarráð Íslands Önnur mynd af forsalnum. stjórnarráð Íslands Tilkynning á vef Stjórnarráðs Íslands: „Nú er komin mynd á nýja og glæsilega Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki sem mætir kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal. Auglýst var eftir teymum til að taka að sér verkefnið árið 2024. Með teymum var leitast við að semja við hóp aðila til að annast framkvæmdina frá upphafi til enda, allt frá hönnun að fullkláruðu mannvirki. Í forvalinu voru þrjú teymi valin til þátttöku í samkeppnisútboði. Tvö endanleg tilboð bárust í samkeppnisútboðinu, annars vegar frá teymi Ístaks hf. og hins vegar frá teymi Íslenskra aðalverktaka hf. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með málið fyrir hönd ríkisins með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir annaðist útboðsferlið. Í mati á tilboðum tók þrettán manna matsnefnd afstöðu til 32 ítarlegra matsliða á grundvelli krafna ríkis og borgar til mannvirkisins. Horft var til þess að tryggja framúrskarandi gæði í hönnun, byggingu og rekstri Þjóðarhallar með áherslu á notagildi, útlit, frágang, aðgengi, sjálfbærni og hagkvæmni. Í lokavalinu stóð teymi Íslenskra aðalverktaka hf. ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Ísloft, EOH og Landhönnun uppi sem sigurvegari. Tilboðið er að fjárhæð 16,8 milljarða króna, með virðisaukaskatti. Tækifæri til hagræðingar eru til staðar samhliða samningagerð og fullnaðarhönnun án þess að breyta kröfum um gæði og notagildi. Ný Þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla. Hún mun rísa í hjarta Laugardals, sunnan Laugardalshallar, með góðri tengingu við borgarlínu, göngu- og hjólaleiðir og fyrirliggjandi mannvirki: Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöll. Notendur verða íþróttafélög, landsliðshópar sérsambanda fyrir æfingar og keppni, skólar í nágrenninu, háskólar fyrir íþróttakennslu og ýmsir viðburðahaldarar. Höllin verður aðgengileg öllum, vettvangur lýðheilsuverkefna og samkomustaður íþróttafólks og almennings með tilheyrandi veitingarekstri sem tengist safnsvæði áhorfenda. Nánari upplýsingar um mannvirkið er að finna á vef Þjóðarhallar ehf. Samkvæmt reglum opinberra innkaupa stendur nú yfir lögbundinn biðtími þar sem tilboðsgjöfum gefst kostur á að kynna sér niðurstöðuna og eftir atvikum gera athugasemdir eða bera ákvörðunina undir kærunefnd útboðsmála áður en heimilt er að ganga frá samningi. Að samningsgerð lokinni hefst undirbúningur framkvæmda.”
Ný þjóðarhöll Laugardalsvöllur ÍSÍ HSÍ Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Atvinnumenn mega snúa aftur í háskólaboltann Kínverskar stórstjörnur í haldi yfirvalda vegna rannsóknar um spillingu Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Kjúklingur kostnaður fyrir treyjunúmerið Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ „Var ekki langt frá því að tárast“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Berglind Katla fer í skóla í New York Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Sjá meira