Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Atli Ísleifsson skrifar 12. júní 2026 06:59 Það kemur til með að létta til þegar líður á daginn og fer veður hlýnandi. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir norðaustan og norðan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag. Það hefur verið rigning á köflum sunnan- og vestanlands í nótt, en þegar kemur fram á daginn á að létta til með hita 13 til 20 stig.
Á vef Veðurstofunnar segir að það sé sem sagt möguleiki á að fyrstu tuttugu stig ársins mælist í dag og að helst séu líkur á því á Suðurlandi eða á höfuðborgarsvæðinu. „Í norðausturfjórðungi landsins og við norðvesturströndina er annað uppi á teningnum í dag. Þar verður þungbúið veður með þokusúld og 6 til 10 stiga hita. Hitaspákort klukkan 17 í dag.Veðurstofan Á morgun er spáð breytilegri átt 3-8 og víða bjartviðri á landinu. Skýjað á Austurlandi í fyrramálið, en ætti að rofa til þar eftir hádegi. Hiti yfirleitt á bilinu 12 til 18 stig á morgun. Áfram rólegt veður á sunnudag, en heldur meira af skýjum á lofti og stöku síðdegisskúrir gætu látið á sér kræla á Suður- og Vesturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Breytileg átt 3-8 m/s. Víða bjartviðri á landinu og hiti 12 til 18 stig, en sums staðar þokuloft og svalara við norður- og austurströndina. Á sunnudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með köflum á landinu og stöku síðdegisskúrir á Suður- og Vesturlandi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á suðvestanverðu landinu. Á mánudag: Austlæg átt 3-10 og víða skýjað, líkur á skúrum sunnantil á landinu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Vesturlandi. Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 með lítilsháttar rigningu norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands. Á miðvikudag (lýðveldisdagurinn) og fimmtudag: Norðan- og norðaustanátt. Dálítil væta norðan- og austanlands, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 5 til 12 stig, mildast syðst.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira