Sport

Næstum því hundrað leik­menn á þessu HM fæddir í Frakk­landi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frönsku leikmennirnir Kylian Mbappé, Malo Gusto, Michael Olise og Marcus Thuram.
Frönsku leikmennirnir Kylian Mbappé, Malo Gusto, Michael Olise og Marcus Thuram. Getty&Marijan Murat

Frakkar eru sigurstranglegir á komandi heimsmeistaramóti í fótbolta og geta nánast stillt upp tveimur samkeppnishæfum landsliðum. Áhrif Frakklands ná þó langt út fyrir franska landsliðið eins og sést þegar leikmannahópar þjóðanna eru skoðaðir betur.

Franska landsliðið hefur verið í síðustu tveimur úrslitaleikjum heimsmeistaramótsins, vann Króatíu í úrslitaleiknum 2018 en tapaði fyrir Argentínu í vítakeppni í úrslitaleiknum fyrir fjórum árum.

Franska liðið er gríðarlega vel mannað og það er ljóst að margir frábærir leikmenn komust hreinlega ekki í HM-hóp þeirra í ár.

Næstum því undrað leikmenn sem eru fæddir í Frakklandi munu nefnilega taka þátt í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 2026 eða fleiri en frá nokkru öðru landi.

Af þeim 1248 leikmönnum sem valdir eru á mótið fæddust ótrúlega margir í Frakklandi eða næstum því átta prósent af öllum leikmönnum á heimsmeistaramótinu.

76 þessara leikmanna sem fæddir eru í Frakklandi munu ekki einu sinni keppa fyrir Frakkland. Þess í stað munu þeir spila fyrir aðrar þjóðir vegna fjölskylduarfleifðar sinnar og tvöfalds ríkisfangs.

Nokkrar af stærstu stjörnunum eru: Riyad Mahrez (Alsír), Kalidou Koulibaly (Senegal), Aymeric Laporte (Spánn) og Jordan Ayew (Gana).

Fótboltaverksmiðja Frakklands í fótbolta heldur því áfram að framleiða úrvalshæfileika á því stigi sem engin önnur þjóð jafnast á við, allt frá Clairefontaine til knattspyrnuakademía um allt land.

Á sama tíma mun Frakkland sjálft mæta með einn sterkasta hóp mótsins og hefur meira að segja þrjá leikmenn sem fæddust utan Frakklands eða þá Michael Olise (England), Marcus Thuram (Ítalía) og Brice Samba (Lýðstjórnarlýðveldið Kongó).

Frakkland hefur því næga hæfileika til að keppa um heimsmeistaratitilinn og útvega tugum annarra þjóða heimsklassa leikmenn í viðbót við það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×