Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. júní 2026 06:48 Sprengingar hafa heyrst yfir borgum í Ísrael, þar sem loftvarnakerfi hafa skotið niður eldflaugar frá Íran. Getty Ísraelsher gerði árásir á skotmörk í mið- og vesturhluta Íran í morgun. Samkvæmt miðlum í Íran heyrðust sprengingar í borgunum Isfahan, Karaj, Tabriz og Tehran. Alþjóðaflugvellinum í höfuðborginni var lokað í kjölfar árásarinnar.
Íranir hafa þegar svarað árásunum með eldflaugaárás á Jerúsalem, þar sem sprengingar heyrðust yfir borginni. Yfirlýst vopnahlé á svæðinu virðist nú í verulegri hættu eftir að Ísraelar gerðu árásir á Beirút um helgina, þrátt fyrir samkomulag við stjórnvöld í Líbanon í vikunni. Tveir létust og um 20 voru særðir. Mohammad-Bagher Ghalibaf, forseti íranska þingsins, hefur sagt að herstöðvar Bandaríkjanna og herafli á svæðinu séu nú „lögmæt skotmörk“ fyrir Íran. Þá greindu miðlar frá því í morgun að Hútar í Jemen hefðu gert árásir á skotmörk í Ísrael og hótað frekari árásum á skipaumferð á Rauðahaf. Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa lagt hart að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gær að halda aftur af sér í því að svara hefndarárásum Írana. Á sama tíma þá sagði Trump í samtali við Financial Times að Netanyahu yrði tilneyddur til að sætta sig við það samkomulag sem forsetinn gerði við Íran. „Það er ég sem ræð,“ er haft eftir Trump. „Hann mun ekki hafa um neitt að velja. Ég ræð. Ég tek allar ákvarðanirnar. Hann ræður engu.“ Olíuverð hækkaði um þrjú prósent í morgun.
Ísrael Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Líbanon Mest lesið Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Fleiri fréttir Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Sjá meira