Innlent

Mót­mæli við Austur­völl

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Um 150 mótmælendur eru á Austurvelli.
Um 150 mótmælendur eru á Austurvelli. Vísir/Vilhelm

Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag.

Mótmælin sem samtökin No Borders standa fyrir hófust klukkan þrjú og ræðuhöld hefjast klukkan fjögur.  

Samtökin No Borders standa fyrir mótmælunum.Vísir/Vilhelm

Fréttamaður Vísis er á Austurvelli og segir mikil læti vera á svæðinu og að þingmenn kíki út um gluggann á Alþingishúsinu öðru hvoru. Lögregla stendur vörð um húsið.

Vísir/Vilhelm

Samkvæmt upplýsingum á Facebook-viðburði mótmælanna krefjast samtökin No Borders þess að:


„1. Ríkisstjórnin hætti vistun umsækjenda um alþjóðlega vernd í gæsluvarðhaldi.

2. Frumvarpið verði dregið til baka án tafar.

3. Fundnar verði leiðir til þess að tryggja öryggi og frelsi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Til eru mannúðarlegri og vægari úrræði.“


Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er meðal mótmælenda.

Meðal ræðumanna mótmælanna eru fulltrúar W.O.M.E.N in Iceland (félag kvenna af erlendum uppruna) og Amnesty International. Á síðustu dögum hafa samtök og stofnanir gefið út yfirlýsingar þar sem þau leggjast gegn frumvarpinu, einkum fyrirhugaðri vistun barna.

Lögregla stendur vörð um Alþingishúsið.Vísir/Vilhelm

Ekki fyrstu mótmælin vegna frumvarpsins

Á mánudaginn síðastliðinn var gert hlé á þingfundi eftir að mótmælendur á vegum No Borders létu í sér heyra á þingpöllum í annarri umræðu frumvarpsins.

Til stóð að afgreiða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á yfirstandandi þingi, fyrir mars, og að úrræðið yrði opnað í júní á þessu ári.

Greint var frá því í upphafi síðasta mánaðar að allsherjar- og menntamálanefnd hygðist leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Mótmæli við Austurvöll

Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag.

Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni

Allsherjar- og menntamálanefnd hyggst leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Nefndarmaður segir tillöguna hafa komið frá ráðuneytinu.

Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð

Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×