Upp­gjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigur­mark Róberts færir Fram nær toppnum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Stjarnan hefur sjö stig eftir fyrstu átta leik deildarinnar. 
Stjarnan hefur sjö stig eftir fyrstu átta leik deildarinnar.  Vísir/Ernir

Fram lagði Stjörnuna að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við á Samsung-vellinum í Garðabænum í áttundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.

Það var Róbert Haukssons sem skoraði sigurmark Stjörnunnar rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok. 

Bæði lið höfðu skipst á að banka á dyrnar upp við mark andstæðinganna en Frammarar börðu sínu fastar og í lengri tíma. 

Langþráð tækifæri Framara í byrjunarliðinu

Freyr Sigurðsson, sem hafði verið að koma sér í góðar stöður og skotfæri með kraftmiklum hlaupum lagði upp sigurmark Róbert með einu slíku þegar korter var eftir af leiknum. 

Fram hefur eftir þennan sigur nælt sér í 13 stig af 15 mögulegum og situr í þriðja sæti deildarinna, tveimur stigum á eftir KR sem hefur 19 stig og fimm stigum frá Víkingi sem trónir á toppnum. 

Stigasöfnun Stjörnunnar hefur hins vegar verið rýr en liðið hefur nælt sér í eitt stig í síðustu sex leikjum sínum. Þar á milli kom sigur gegn KR í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins. 

Jökull Elísabetarson fylgist með liði sínu af hliðarlínunniVísir/Ernir

Jökull: Vantaði upp á orkustigið í þessum leik

„Mér fannst þetta frekar lokaður leikur þar sem liðin skiptust á að ná yfirhöndinni. Þeir nýttu eitt af þeim færum sem þeir sköpuðu og náðu þar af leiðandi í sigur,“ sagði Jökull I. Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar að leik loknum. 

„Liðin voru svolítið að þreifa á hvort öðru í fyrri hálfleik og lítið um færi. Svo náðum við góðum kafla í upphafi seinni hálfleiks án þess þó að ná að nýta okkur það,“ sagði Jökull enn fremur. 

„Það sem vantaði helst upp á til þess að ná að skapa fleiri færi og særa þá meira var meira orkustig. Það þýðir ekkert að væla þetta tap og stöðuna sem við erum í. Við þurfum bara að finna það orkustig aftur sem var í leikjunum á undan þessum,“ sagði hann um stöðu mála hjá Stjörnunni. 

Rúnar: Ánægður með þá sem komu inn í liðið

„Það er ofboðslega sterkt að ná að halda hreinu á þessum erfiða útivelli og enn sætara að ná að setja sigurmarkið sem mér fannst við eiga skilið miðað við frammistöðuna okkar,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, að leik loknum.

„Við vorum þéttir þegar þess þurfti og vorum svo hættulegir þegar við náðum að láta boltann ganga hratt og sækja af krafti á þá. Það er gaman að sjá Frey og Róbert sem hafa beðið þolinmóðir eftir sínu tækifæri skapa markið sem skilur liðina að í þessum leik,“ sagði Rúnar þar að auki. 

„Jakob kom einnig með mikla orku inn í framlínuna og þeir sem komu inn í þennan leik stóðu sig allir vel. Við erum vissulega búnir að spila vel undanfarið, bæta leik okkar frá því fyrra og erum á góðum stað. Það er hins vegar enn mikil vinna sem þarf að leggja á sig til þess að halda áfram þessu góða skriði,“ sagði hann með báða fætur á jörðinni. 

Rúnar Kristinsson gat leyft sér að vera ánægður með frammistöðuna.Vísir / Hulda Margrét

Atvik leiksins

Eftir að hafa fengið nokkur færi til þess að brjóta ísinn setti Róbert Hauksson markið sem færið Frömurum sætan sigur í hörkuleik í Garðabænum. Róbert hefur fengið fáar mínútur í framlínu Fram en minnti á sig með þessu sigurmarki. 

Stjörnur og skúrkar

Freyr Sigurðsson og Fred voru bæði ofboðslega vinnusamir og sérlega skapandi inni á miðjunni hjá Fram. Róbert hélt svo varnarmönnum Stjörnunar svo sannarlega við efnið og setti boltann inn eftir góða stoðsendingu frá Frey. 

Viktor Freyr Sigurðsson varði vel frá Bjarka Hrafni Garðarssyni á lokamínútum leiksins, Sigurjón Rúnarsson heldur áfram að spila vel í hjarta varnarinnar og allir Framarar fara sáttir á koddann eftir að hafa haldið hreinu. 

Árni Snær Ólafsson skilaði boltanum vel frá sér að vanda og greip vel inn í þegar þess þurfti. Jóhann Árni Gunnarsson spilaði vel inni á miðjunni en heilt yfir vantaði upp á að leikmenn Stjörnunnar sýndu sitt rétta andlit. 

Bjarki Hauksson kom inná þegar um það bil 20 mínútur voru eftir og skömmu síðar var búið að vísa honum af velli með rauðu spjaldi fyrir pirringsbrot. Ekki það framlag sem Stjarnan þarf í þeirri stöðu sem liðið er í þessa stundina. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Þórður Þorsteinsson Þórðarson, Patrik Freyr Guðmundsson, Guðmundur Ingi Bjarnason og Hreinn Magnússon, höfðu góð tök á þessum leik og gerðu sitt til þess að leyfa honum að flæða án truflunar. Fá sjö í einkunn fyrir sín störf. 

Stemming og umgjörð

Tæplega 500 manns sem lögðu leið sína í Garðabæinn í kvöld. Mis létt yfir stuðningsmannasveitunum eins og gefur að skilja. Báðar sveitir studdu sitt lið með myndarskap. 

Framarar gátu tekið gleði sína á ný að fá að mæta með trommurnar eftir að hafa verið bannað að slá taktinn í Vesturbænum í síðustu umferð þrátt fyrir að hafa mætt með þaulreyndan, taktfastan og skemmtilegan slagverksleikara á svæðið. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira