„Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 21. maí 2026 22:15 Lárus Orri var ósáttur með Skagamenn í kvöld. vísir Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ekki nægilega ánægður með sína menn eftir að þeir misstu niður tveggja marka forystu í 2-2 jafntefli gegn ÍBV í Bestu deildinni í fótbolta á Elkem vellinum á Akranesi í kvöld. „
Mér fannst þetta í rauninni ekki nógu gott. Í fyrsta lagi var fyrri hálfleikur hjá okkur ekki nógu góður. Við vorum að vísu mikið með boltann og þeir lögðust mjög djúpt. Við náðum hins vegar eiginlega ekki að skapa okkur nokkurn skapaðan hlut. Þeir voru oft og tíðum hættulegir þegar þeir náðu skyndisóknum á okkur. Ég var ósáttur við fyrri hálfleikinn. Í hálfleik ákváðu menn að stíga aðeins upp og gerðu það. Mér fannst besti hlutinn af leiknum vera í upphafi síðari hálfleiks þar sem við náðum þessum tveimur mörkum. En manni leið samt einhvern veginn aldrei eins og við værum að sigla þessu heim. Þetta var alls ekki nógu gott,“ sagði Lárus Orri við Sýn Sport eftir leik. Ætla ekki að nota það sem afsökun Fannst þér þínir menn slaka of mikið á eftir að hafa komist í 2-0? „Nei, mér fannst það ekki. Við getum jafnvel sagt að við hefðum frekar átt að leggjast niður heldur en að halda áfram að reyna að loka hátt á þá. Við viljum ekki gera það, við viljum halda áfram að reyna að keyra á þá. Við reyndum það en það gekk ekki. Svo fá þeir þessa aukaspyrnu og það kemur mark upp úr því. Þá er svona meðbyrinn kominn aftur með þeim og við raunverulega náum ekki aftur inn í leikinn fyrr en bara alveg í blálokin þar sem við herjum svolítið á þá síðustu fimm mínúturnar,“ sagði hann. Leikur Skagamanna virtist riðlast nokkuð vegna fjölda skiptinga en Lárus Orri útskýrði að hann hafi verið tilneyddur til að gera þær en vildi síður en svo nota skiptingarnar sem afsökun. „Þetta eru allt skiptingar út af meiðslum en það ætti ekki að hafa neitt að segja og ég ætla ekki að horfa á það sem einhverja afsökun,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson við Sýn Sport.
Besta deild karla ÍA ÍBV Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira