Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. maí 2026 19:50 Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í góðum gír í kappræðum Sýnar í vikunni. Enda þau á að mynda meirihluta? Vísir/vilhelm Spennan er því sem næst ærandi þegar styttist í að kjörstöðum verði lokað í Reykjavík. Meirihlutamyndun til hægri er mun líklegri en til vinstri í höfuðborginni miðað við nýja kosningaspá. Afdráttarlaus útilokun í kosningasjónvarpi í gærkvöldi gæti haft mikil áhrif á framhaldið. Gæti svo farið að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi meirihluta?
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, ræddi stöðuna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Hann segir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins líklegustu niðurstöðuna enda sé Samfylkingin með erfiðan farangur í farartaskinu eftir óvenju langa valdatíð. Samkvæmt kosningaspá Vísis eru meira en helmingslíkur á því að áðurnefndir þrír flokkar geti myndað meirihluta í Reykjavík. Yrði það eini raunhæfi möguleikinn á þriggja flokka meirihluta eftir að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, útilokaði samstarf við Miðflokkinn. „Það er svona augljósasti meirihlutinn sem við getum séð, bæði út frá málefnum, stöðu flokkanna og svo ekki síst bara svona afstöðu leiðtoganna sjálfra, bæði til þessara flokka og annarra oddvita innan þeirra,“ sagði Eiríkur í hádeginu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Sjálfstæðisflokknum ekki skemmt yfir yfirlýsingu Bjargar Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins í gærkvöldi. Björg útilokaði samstarf með Miðflokki og þar með virðist meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks úr sögunni. Bolli Thoroddsen, sem er lykilmaður hjá Sjálfstæðisflokknum á bak við tjöldin, hvatti Björgu og félaga í Viðreisn til að endurskoða afstöðu sína og útiloka ekki samstarf við Miðflokkinn. „Ég hef starfað með Ara Edwald sem er framsýnn og öflugur rekstrarmaður. Þó að ég, líkt og margir, telji að Samfylkingin þurfi langt og gott frí í borginni þá vil ég heldur ekki að Hildur útiloki slíkt tveggja flokka samstarf. Öfugt við ýmsa leiðtoga hefur hún einmitt ekki gert það, sem kemur aftur að mínum útgangspunkti hér, þ.e. hversu víðsýnn og skynsamur leiðtogi Hildur Björnsdóttir er.“ Össur sér óvæntan meirihluta í kortunum Bolli steig fram á ritvöllinn til að svara fullyrðingum Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að Hildur Björnsdóttir væri ekki efni í borgarstjóra þar sem henni hefði gengið illa að stýra eigin borgarstjórnarflokki. Vísaði hann til erfiðleika í samstarfi en þrír fulltrúar í borginni yfirgáfu hann að lokum á lokametrum kjörtímabilsins. Össur Skarphéðinsson er hokinn af reynslu í íslenskum stjórnmálum og hefur farið mikinn á Facebook þar sem reynir að finna veikan blett á Sjálfstæðisflokknum. Sitt sýnist hverjum um þau skot.Vísir/Vilhelm „Ég get náttúrlega ekki mótmælt þér, Bolli minn, frekar en fyrri daginn. En næsti meirihluti er borðleggjandi og mun koma mörgum á óvart, þar á meðal þér,“ sagði Össur. Fréttastofa gerði tilraun til að ná tali af Össuri og spyrja hann nánar út í spádóm sinn. Annars vegar gæti Össur verið að spá fyrir um einhvers konar fjölflokka meirihluta til vinstri með þá fimm flokkum, sem er alls ekki augljós kostur, eða hinn augljósari. Að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi meirihluta sem gæti talið þrettán fulltrúa og verið þannig með sterkt umboð. Hvorugur flokkurinn hefur útilokað hinn þótt oddvitar flokkanna hafi skotið hvor á annan og virðast ólíklegir til samstarfs fyrst um sinn. Að loknum kosningum er þó á ábyrgð kjörinna fulltrúa að mynda meirihluta og því gæti komið til þess að oddvitarnir eigi símtal. Þau gætu reyndar farið saman út að ganga með hundana enda búsett í sömu götu í vesturbæ Reykjavíkur og aðeins eitt hús á milli. Samkvæmt heimildum Vísis fór það þó ekki vel í Samfylkingarliða þegar Björg sagðist í kosningasjónvarpi gærkvöldsins myndu fyrst hringja í Hildi oddvita Sjálfstæðisflokksins og þannig leita til hægri en ekki til vinstri með Samfylkinginni. Vandi er um slíkt að spá Svo þarf að hafa í huga að síðasta könnun Maskínu var framkvæmd áður en Björg afskrifaði samstarf við Miðflokkinn. Hvaða áhrif hefur það á kjósendur? Bætir Viðreisn við sig og tryggir sér þrjá fulltrúa eða endar flokkurinn með tvo? Sjálfstæðisflokkurinn hefur oft verið aðeins vanmetinn í könnunum og spurning hvort flokkurinn nái í sinn níunda mann. Kosningaspáin gefur Sigrúnu Ástu Einarsdóttur 36 prósent líkur á að komast inn. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá 16. maí Að neðan má sjá líkur á því að hægt væri að mynda eftirfarandi meirihluta miðað við nýjustu og síðustu kosningaspá Vísis í samstarfi við Baldur Héðinsson: Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin - 92 prósent líkur (yrði aldrei fyrsti kostur) Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreins og Miðflokkurinn - 89 prósent líkur (Viðreisn útilokar) Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsókn - 58 prósent líkur Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkur og Framsókn - 51 prósent líkur Samfylkingin, Viðreisn, Vinstrið og Sósíalistar - 37 prósent líkur Hægt er að dunda sér við að reikna út líklega meirihluta hér að neðan.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Fleiri fréttir Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Sjá meira