Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Smári Jökull Jónsson skrifar 16. maí 2026 16:11 Eftirlitið fer fram samkvæmt heimild landskjörstjórnar. Vísir/Vilhelm Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins eru hér á landi til að fylgjast með framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna. Að sögn framkvæmdastjóra landskjörstjórnar er hópurinn hér á landi að eigin frumkvæði og fylgist með að framkvæmd kosninganna sé í samræmi kosningalög.
Landskjörstjórn gefur út heimildir til kosningaeftirlits við kosningar hér á landi en helstu markmið og tilgangur eru að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga að því er segir á vef landskjörstjórnar. Í tengslum við sveitastjórnarkosningarnar eru staddir hér á landi tveir hópar sem sinna eftirliti. Ástríður Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri landskjörstjórnar.Vísir/Einar Annars vegar er um að ræða héraðs- og sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (The Congress og Local and Regional Authorities of the Council of Europe) og hins vegar bresku samtökin Democracy volenteers. „Hlutverk þeirra er í rauninni að fylgjast með framkvæmd kosninganna og þau koma að eigin frumkvæði,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri landskjörstjórnar. „Það er heimild í löggjöf flestra ríkja sem við þekkjum, fyrir erlenda og innlenda kosningaeftirlitsmenn, til að koma til landsins og rækja þetta kosningaeftirlit. Þeir heimsækja kjörstaði og framkvæmdaaðila kosninga til að fylgjast með að framkvæmdin sé í samræmi við kosningalög.“ „Í raun eru kjörstaðir og talningastaðir opnir almenningi“ Ástríður segir kjarna eftirlitsins vera að um sé að ræða óháða aðila sem landskjörstjórn má ekki skipta sér af hvert fari. Að hennar sögn eru hóparnir bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. „Þau gefa sig fram og ef þau vilja eiga fundi með einhverjum þá hafa þau samband og óska eftir fundum. Í raun eru kjörstaðir og talningastaðir opnir almenningi og þau mega fara hvert á land sem er.“ Hóparnir gefa í kjölfarið út skýrslu með tilliti til alþjóðegra staðla um kosningaeftirlit. Skýrslan verður opinber og verður einnig afhent landskjörstjórn. „Landskjörstjórn hefur í raun það hlutverk að gefa út heimildir til kosningaeftirlits þannig að við vitum alltaf af því ef það kemur fólk og þau þurfa heimild frá landskjörstjórn til að geta farið í eftirlit,“ segir Ástríður að lokum.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira