„Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Jakob Bjarnar skrifar 7. maí 2026 16:31 Hanna Katrín beintengdi atvik sem varð á handboltaleik í Vestmannaeyjum við Miðflokkinn og sendi kaldar kveðjur á Snorra Másson. vísir/anton brink Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra setti á mikla ræðu um fordóma og klykkir út með því að lesa Miðflokknum pistilinn. Þeir sem vilja spá í hugsanlegt meirihlutasamstarf Miðflokks og Viðreisnar geta nánast sett strik yfir þær bollaleggingar.
Hanna Katrín birtir messu sína á Facebook-síðu sinni þar sem hún segir um það sem hún vill kalla innflutta fordóma: „Mikið hljóta stuðningsmenn ÍBV, þessa öfluga íþróttafélags, að skammast sín fyrir framgöngu þeirra sem gerðu aðsúg að markmanni Vals í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil í kvennahandbolta núna í vikunni.“ Vísir greindi frá atvikinu fyrr í vikunni. Hanna Katrín segist vita að þetta sé ekki nokkuð sem félagið vilhu standa fyrir og hún geri ráð fyrir að máli verði tekið föstum tökum í Vestmannaeyjum sem og á vettvangi Handknattleikssambands Íslands. „En svona fordómar, niðrandi köll á andstæðinga í íþróttaleik, eiga sér ekki stað í tómarúmi. Samtökin 78 sem og aðrir sem starfa innan mannréttindasamtaka ýmis konar hafa bent á sýnilegt bakslag í réttindum hinsegin fólks hér á landi.“ Segir Miðflokkinn vilja halda hinsegin fólki í skugganum Ráðherrann segist muna þá tíð að flestir stjórnmálamenn hafi verið þungir í taumi þegar kom að því að tryggja hinsegin fólki mannréttindi til jafns við aðra þegna. Hanna Katrín Friðriksson beintengdi atvikið í Eyjum við málflutning Miðflokksins.vísir/anton brink „Það var almenningur sem þá tók boltann með hugrökku baráttufólki og þrýsti á um breytingar. Í kjölfarið og alla tíð síðan hefur Ísland verið með þeirra þjóða þar sem hinsegin fólk kemst næst því að njóta réttinda til jafns við aðra þjóðfélagsþegn.“ Hanna Katrín beindi þá sjónum að Miðflokkunum og sagði hann vilja fara til baka til gömlu góðu dagana þar sem hinsegin fólk var ekki svona sýnilegt heldur var haldið í skugganum. „Til að ná þessu fyrirheitna ríki sínu herjar Miðflokkurinn nú á almenning með innfluttum fordómum. Stefið í fordómarausinu er að aukin réttindi hinsegin fólks þýði minni réttindi annarra.“ Hanna Katrín treystir ÍBV til að kýtta í þær sprungur sem mynduðust í íþróttahúsinu í Eyjum um daginn hratt og örugglega. Miðflokkurinn misnoti íslenska fánann „Eitt að lokum,“ sagði Hanna Katrín og fór nú hvergi leynt með það hvað henni finnst í raun og veru um Miðflokkinn: Hanna Katrín tók það sérstaklega fram að Snorri Másson væri ekki fórnarlamb í þessari ræðu hennar.vísir/anton brink „Ein uppáhaldsiðja Miðflokksmanna er að misnota íslenska fánann í fordómafullri orðræðu sinni um málefni hinsegin fólks. Þess vegna er rétt að draga fram að sem afrekskona í íþrótt sinni, landsliðskona sem hefur borið hróður Íslands víða, hefur Hafdís Renötudóttir gert margfalt meira til að heiðra íslenska fánann en allir Miðflokksmenn til samans.“ Og ráðherrann hnýtti við, eins og til að vilja þagga niður í einum yngsta þingmanninum: „Og nei Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Miðflokkurinn Hinsegin Handbolti Vestmannaeyjar ÍBV Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira