Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. maí 2026 21:01 Rétt fyrir setningu skíðavikunnar 2026. Atli Viðar Þorsteinsson Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Gylfi Ólafsson er oddviti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ. Ég er tveggja barna faðir, giftur Tinnu Ólafsdóttur. Ég bý á Ísafirði þar sem ég ólst upp, og er ástríðuskíðagöngumaður og píanóglamrari. Ég lærði heilsuhagfræði í Stokkhólmi og var um hríð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Ég sit í bæjarstjórn fyrir hönd Í-listans, er formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, formaður stjórnar Vestfjarðastofu og sjálfboðaliði við undirbúning Fossavatnsgöngunnar. Ég er líka undirleikari í karlakórnum Erni. Núna er ég í fyrsta sæti Viðreisnar og bæjarstjóraefni flokksins. Það er ótrúlega gaman að kynnast haug af nýju fólki, bæði á listanum og kjósendum, enda er maður á þönum frá morgni til kvölds í þessu brasi. Mér finnst starfið í bæjarstjórn svakalega skemmtilegt. Fólkið sem velst í bæjarmálin hefur verið sammála um að vinna saman að lífsgæðum íbúanna og jákvæðni einkennt samstarfið. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ég myndi væntanlega búa á Akureyri. Ég bjó þar þegar ég var í grunnskólakennaranámi og leið mjög vel.“ Hver er uppáhaldsbókin þín? „Náttúrulögmálin eftir Eirík Örn Norðdahl. Það var eins og að ganga inn í ævintýraheim að lesa þá bók og ég hugsa oft til hennar.“ Í gosmóðu í Arnardal.Aðsend Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Til skemmri tíma er auðvitað best að skera niður framkvæmdir, en ef það ætti að vera í rekstri, eru engar sérstakar matarholur, heldur þyrfti það að vera smávægilegar breytingar hér og þar. Það er auðvitað hlutverk bæjarstjórnar og embættismanna að gera þetta almennilega og með virðingu fyrir þjónustu sveitarfélagsins.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Hvalreka er best að setja í að lækka skuldir, en það er margt í skólamálum og málefnum barna sem þarf að laga.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Góður drengur og vel upp alinn.“ Með börnunum á bikarúrslitaleik Vestra 2025.Aðsend Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Senda skilaboð. Ég er annars frekar góður í tölvupósti, svo það er eitthvað sem þú vilt að ég geri og að það gleymist ekki er tölvupóstur langbesti samskiptamátinn.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ég er fylgjandi sameiningu allra sveitarfélaga á Vestfjörðum, en margt Viðreisnarfólk hér á kjálkanum er ekki sammála mér.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Myndbandaklipping í DaVinci Resolve, bókhald og rafvirkjun.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Það eru háværar raddir um að farsímanotkun í grunnskólum verði takmörkuð með einum eða öðrum hætti. Sama hvað gert verður þar er ljóst að það verður umdeilt, og jafnvel þó ekkert verði gert. Við viljum stofna ungmennaráð til að ræða þessi mál formlega en þetta verður bæði krefjandi og skemmtilegt viðfangsefni.“ Með harmonikuna á áramótabrennunni á ÍsafirðiAðsend Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Pælingar um hraðhleðslustöðvar, volt, wött og staðsetningar á Vestfjörðum.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég get hugsað mér að vinna með Framsókn, Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni. Mér hefur sýnst ólíklegt að Miðflokkurinn eigi mikið sameiginlegt með okkur.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Mér finnst stundum að ég hefði átt að sinna tónlistinni betur á unglingsárum.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Skíðagöngusvæðið á Seljalandsdal er besta skíðagöngusvæði á landinu.“ Á vaðinu yfir Fljótavíkurósinn í Hornstrandafriðlandinu með systursyni mínum.Aðsend Hvað borðar þú í morgunmat? „Pólitíska andstæðinga mína.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Það þarf að bæta ýmsa ferla í sveitarfélaginu án þess að fara í smáatriði með það.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Að ná skuldahlutfalli Ísafjarðarbæjar undir 100% og komast aftur undir 3 tíma í 50 km Fossavatnsgöngunni.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Ég held úti lista á Spotify sem heitir Bestu lögin í heimi (langtímaverkefni), þar sem ég safna saman lögum sem uppfylla það skilyrði að ég geti hlustað á þau aftur og aftur. Ef ég ætti hinsvegar að velja eitt lag sem uppáhalds, er það lag eftir sjálfan mig, Sólarpönnukökur. Lagið samdi ég fyrir tveimur árum um þá hefð í djúpum vestfirskum fjörðum að borða pönnukökur þann dag sem sólin lætur sjá sig fyrsta skipti eftir jólafrí. Hefð hefur skapast um að spila lagið í grunnskólanum einhvern dag nálægt 25. janúar, og ég fæ alveg svakalega hlýtt í hjartað þá.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Framkvæmdirnir fyrir norðan Fjarðarstræti í Skutulsfirði með lítilli uppfyllingu og grjótgarði voru að ýmsu leyti misheppnuð framkvæmd. Ég hef lært mikið af því.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ég hef ekki fengið mörg gælunöfn um tíðina, en ég hef endrum og eins brugðið mér í hlutverk plötusnúðsins DJ Ramaquain, sem er mikill stemningsmaður og er með þá einu reglu að byrja settið á tjáningardansi við Euphoria með Loreen.“ DJ Ramaquain er mikill stemningsmaðurAðsend Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Breyta opinberu léni Ísafjarðarbæjar úr Isafjordur.is í Isafjardarbaer.is
Oddvitaáskorunin Ísafjarðarbær Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Uggvænlegar kynjaverur taka yfir garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira