„Eins og stúdentsprófin í MR“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 22:06 Óskar Hrafn var kátur í kvöld. Vísir/Diego „Ég er auðvitað bara mjög ánægður. Þetta var mjög öflug frammistaða. Það er fátt betra í fótboltalífinu manns en að vinna Val á Hlíðarenda,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 4-1 sigur hans manna á Val í Bestu deild karla í kvöld.
Sigur KR var sannfærandi. Eftir skjálfta í byrjun var aðeins eitt lið á vellinum á Hlíðarenda í kvöld. „Mér fannst við betri aðilinn. Það var mikil taugaspenna í byrjun og þá var þetta í ákveðnu jafnvægi. Það var alveg áþreifanlegt en svo þegar menn jafna sig á því fannst mér bara eitt lið á vellinum. Þeir komast ekki af eigin vallarhelmingi í stóran hluta leiksins,“ „En síðan gáfum við aðeins of mikið eftir, vorum kærulausir, eltum ekki mennina okkar og kærulausir með boltann síðustu sjö til átta mínúturnar. Ég hefði viljað sjá menn halda fókus allan tímann en sumir segja að það sé erfitt að halda fókus þegar þú ert kominn með fína forystu. Ég veit ekki hversu mikið má setja á mína menn en samt er rými til bætinga þar,“ segir Óskar Hrafn. Engin svipuhögg þó Valur hafi skorað Mikið hefur verið rætt og ritað um að KR-ingar eigi í erfiðleikum með að halda marki sínu hreinu. Valur skoraði í uppbótartíma, og ekki í fyrsta sinn sem KR fær á sig mark seint í leikjum sem eru unnir. KR svaraði með einu marki til síðar í uppbótartímanum. „Ég get ekki farið heim og lamið sjálfan mig með svipu því við héldum ekki hreinu. Við unnum 4-1, sko. Við vorum að spila hérna á Hlíðarenda, og eins og þú bentir mér á fimmtudag, sem ég hefði ekki munað og hafði ekki hugmynd um, þá hefur gengi liðsins ekki verið gott hérna síðustu árin,“ „Við getum ekki haldið hreinu, það er rétt. En það er allt í lagi þegar liðin eru að skora á þeim tíma sem þeir eru að skora,“ segir Óskar Hrafn. Prófatíð í Vesturbæ KR hafi staðist enn eitt prófið á yfirstandandi leiktíð en liðið er með fullt hús stiga á toppnum eftir fimm leiki. „Ég var spurður að því hvort þetta væri fyrsta prófið. Þetta eru allt próf. Bara mismunandi próf. Þetta er eins og stúdentsprófin í MR, þetta eru 27 próf. Þau reyna á mann á mismunandi hátt,“ „Þessi leikur var próf (á þann hátt að) með tvö þúsund áhorfendur, við höfum ekki unnið hérna síðan 2020, við erum á þessum stað í töflunni en Valur að koma inn á bullandi siglingu. Það er próf. Við erum í prófum alla vikuna, næsta er á föstudaginn og svo miðvikudaginn þar á eftir. Svo þurfum við að sjá hversu mörg próf við stöndumst, held ég,“ segir Óskar Hrafn. Stefán stóðst sitt próf Stefán Árni Geirsson var öflugur og skoraði tvö.Vísir/Diego Stefán Árni Geirsson kom þá vel inn sem fremsti maður hjá KR fyrir Eið Gauta Sæbjörnsson. Um er að ræða allt öðruvísi leikmann að leika í stöðu sem hann spilar ekkiað staðaldri. En segja má að Stefán Árni hafi staðist sitt próf með bravör. „Stebbi stóð sig vel. Hann var virkilega flottur og auðvitað bara mikilvægur leikmaður. Hann er að koma til baka eftir mjög erfið meiðsli, við vitum að þegar hann er með boltann. Það er ekkert leyndarmál að hann þarf að bæta sig varnarlega en hann er ótrúlega mikilvægur fyrir okkur og það er ótrúlega gaman að sjá hann lifna við hérna á Hlíðarenda.“
KR Valur Besta deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira