Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Þórarinn Þórarinsson skrifar 28. apríl 2026 15:27 Birna Gunnlaugsdóttir byrjaði sumarið á því að drepa í síðustu sígarettunni eftir 46 ára samfylgd og ætlar að halda ró sinni í kosningabaráttunni með hugleiðslu. Mynd/Facebook „Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir ofboðslegu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunnlaugsdóttir, menntunarfræðingur og frambjóðandi Sósíalista, sem eftir tæplega hálfa öld hefði sjálfsagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hugleiða og anda sig í gegnum kosningabaráttuna. „
Ég byrjaði svona í kringum átján ára og er 64 ára núna þannig að þetta er 46 ára samfylgd,“ segir Birna og telur rétt að halda því til haga að reykingar hennar hafi alla tíð verið hóflegar. „Ég var alltaf bara í svona fimm til sjö sígarettum á dag og varð aldrei svona pakkafíkill, eða þannig.“ Hún segir meðalhófið sjálfsagt vinna með henni þegar hún tekur nú þennan slag við tóbakið í fyrsta skipti ef frá eru talin þau sjálfsögðu og eðlilegu hlé sem hún gerði á reykingum á meðgöngu og við brjóstagjöf. „Ég er stödd á heilsustofnun í Hveragerði og þau segja mér hér að það sé allt öðruvísi að hætta við þær aðstæður sem ég er í núna.“ Miklar geðsveiflur eru þekktur fylgikvilli þess að hætta reykingum en Birna segist ekki hafa fundið fyrir slíku svo heitið geti. „Nei, ég get nú ekki sagt það. Fyrirsögnin má ekki vera: Dettur í þunglyndi heldur frekar: Ofsakát,“ segir Birna og hlær. „Ég verð aðeins stundum svona pínu döpur án þess að gera mér grein fyrir af hverju og átta mig svo á að það er vegna þess að ég er ekki að „hressa mig við“, innan gæsalappa, með einhverri innspýtingu.“ Stafrænt hópefli Birna hafði valið sumardaginn fyrsta til að hætta en lá svo á að hún þjófstartaði og hafði því verið reyklaus í tvo daga þegar hún upplýsti um það á Facebook á fyrsta degi sumars:„Nú er komið að leiðarlokum. Það eru tveir dagar síðan ég drap í síðustu sígarettunni. Ég veit að það er stuttur tími, en ég er ákveðin. Ég ætlaði að hafa þennan viðburð í dag því nú er sumardagurinn fyrsti. En nennti ekki að bíða. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.“ „En hvað er þetta með fólk? Ég hef aldrei fengið svona mörg læk, 800! Hvað er í gangi?“ spyr hún og dregur þá ályktun að sjálfsagt hafi svo mörg reynslu af þessum slag og eigi auðvelt með að tengja. Sú kenning er síðan studd 110 athugasemdum, með kveðjum og hvatningu, við færsluna. Hún segir þetta stafræna hópefli mjög af hinu góða vegna þess að eftir því sem fleiri viti af þessu verði henni erfiðara að ganga á bak orða sinna. Vúhúhúhú! Þegar talið berst að vopnum hennar í baráttunni við fíknina segist hún fyrst og fremst treysta á nikótínplástur en nota sterkt tyggjó þegar hún finnur tómleikann læðast að sér. „Og svo er ekki valkostur að fara að borða alls konar snakk af því að ég er í yfirþyngd og það er alveg bannað.“ Birna segist hafa skrifað niður helstu ástæðurnar fyrir því að hún vildi hætta reykingunum. Þær reyndust vera níu talsins og að losna við mæði er ofarlega á blaði. „Af því að ég hef gaman af göngum og fjallgöngum og þetta fer ekki saman, sérstaklega ekki þegar maður er að eldast.En ég er fyrst og fremst bara ofboðslega fegin að vera laus við lyktina. Ég reykti aldrei inni á heimilinu en gerði það í bílnum með allar rúður niðri. Og fyrsti bíltúrinn: Vúhúhúhú! Ég var svo kát. Með tyggjóið mitt.“ Hún segist, strax eftir aðeins átta daga, finna fyrir árangri og hún sé ekki jafn móð. „Maður finnur mun með hverjum degi og svo verður maður að muna að klappa sjálfum sér á bakið.“ Reyklaust bakland Birna skipar 6. sætið á framboðslista Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningunum og vissulega megi hugsa sér heppilegri aðstæður til þess að hætta að reykja. Hún hafi þó ákveðið að láta slag standa, fullkomlega meðvituð um að fram undan væri hasar og stress.„Ég hugleiði tvisvar á dag og það er hægt að ná þessu úr sér með hreyfingu og hugleiðslu. Ég kveið þessu alveg og hef ekki alltaf hugleitt svona mikið en ég sæki í alls konar slökun, mikið á YouTube, og næ mér þannig jafnt og þétt niður.Svo þarf bara að muna að anda. Anda inn á fjórum, halda í sér í sjö sekúndur og anda frá sér á átta. Þannig að það er ýmis tæknin,“ segir reyklausi frambjóðandinn og hlær. Ekki spilli heldur fyrir að andinn sé góður í hennar pólitísku herbúðum. „Það er ofboðslega góð stemning hjá okkur og við erum búin að undirbúa þetta mjög lengi. Við erum búin að hittast mikið og hrista saman hópinn.Við byrjuðum bara eiginlega að undirbúa kosningarnar í fyrrasumar og höfum verið að vinna mikið í málefnaskrá síðan fyrir jól og erum mikið búin að ræða alls konar hugmyndafræði og kynna okkur alls konar hluti í samfélaginu.Svo var bara uppstillingarnefnd sem vann mjög faglega að því að velja á lista. Ég vildi ekki vera í fimm efstu og er í því sjötta. Þessi fimm eru mest áberandi en ég kem strax á eftir. Ég er baklandið.“
Tóbak Heilsa Sósíalistaflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli Sjá meira