Upp­gjörið: Haukar - Kefla­vík 86-70 | Haukar unnu sann­færandi sigur og komust yfir

Hjörvar Ólafsson skrifar
Tinna Guðrún Alexandersdóttir skilaði 10 stigum á töfluna fyrir Hauka í þessum leik. 
Tinna Guðrún Alexandersdóttir skilaði 10 stigum á töfluna fyrir Hauka í þessum leik.  Vísir/Hulda Margrét

Haukar og Keflavík áttust við þriðja sinn í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Ólafssal að Ásvöllum í kvöld. Haukar höfðu betur, 86-70, í rimmunni í kvöld og leiða 2-1 í einvígi liðanna.

Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins en Keishana Washington kom Keflavík í 9-6 um miðjan fyrsta leikhluta en hún hafði þá skorað sjö af níu stigum gestanna í leiknum. 

Krystal-Jade Freeman jafnaði svo metin í 9-9 m með þristi en á þeim tímapunkti hafði hún alfarið séð um stigaskorun liðsins það sem af var leiksins.

Sara Rún Hinriksdóttir setti svo niður tveggja stiga sem og víti sem hún fékk að lokasekúndu fyrsta leikhluta og sá til þess að gestirnir frá Keflavík fóru með þriggja stiga forskot, 16-13 inn í annan leikhluta.

Meiri kraftur í Haukum eftir því sem leið á leikinn

Haukar fóru aftur á móti betur af stað í öðrum leikhluta og fimm stig í röð hjá Tinnu Guðrúnu Alexandersdóttur komu heimakonum 23-19 yfir. 

Lovísa Björt Henningsdóttir kom svo með afar sterka innkomu af varamannabekknum. Lovísa Björt skoraði sex stig á skömmum tíma og spilaði auk þess hörkuvörn. Lovísa Björt kom Haukum í 35-25 þegar þrjár mínútur um það bil voru eftir af öðrum leikhluta.

Þriggja stiga körfur hjá Sofie Tryggedsson Preetzmann og Önnu Ingunni Svansdóttur fyrir Keflavík undir lok annars leikhluta löguðu svo stöðuna fyrir gestina en staðan var 41-35 Haukum í vil þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik.

Haukar héldu uppteknum hætti í þriðja leikhluta og höfðu betur í þeim fjórðungi 25-16 og fóru með 15 stiga forskot í farteskinu inn í fjórða og síðasta leikhlutann.

Keflavík náði ekki að velgja Haukum almennilega undir uggum í fjórða leikhluta og Haukar fóru að lokum með öruggan 16 stiga sigur af hólmi og leiða 2-1 í baráttu liðanna um að koma í úrslitaeinvígið. 

Atvik leiksins

Það var lýsandi fyrir andann og orkustigið í Haukaliðinu í kvöld þegar Lovísa Björt varði skot á öðrum enda vallarins og setti svo niður skot og vítaskot að auki þegar Haukar voru að byggja upp forskot sitt í öðrum leikhluta. 

Stjörnur og skúrkar

Krystal-Jade Freeman skoraði mest fyrir Hauka eða 26 stig talsins og Amandine Justine Toi kom næst með sín 17 stig. Krystal hirti þar að auki 13 fráköst í þessum leik. 

Það voru hins vegar margir leikmenn sem lögðu í púkkinn á báðum endum vallarins og öflug liðsvörn sem lagði í raun grunninn að þessum sigri. 

Hjá Keflavík voru Sara Rún Hinriksdóttir og Keishana Washington atkvæðamestar með 19 stig hvor. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson Birgir Orn Hjörvarsson og Guðmundur Ragnar Björnsson, stóðu sig bara með stakri prýði og létu leikinn rúlla vel áfram. Þeir fá þar af leiðandi sjö í einkunn fyrir sín störf.  

Stemming og umgjörð

Fínasta stemming í Ólafssal í kvöld og bæði lið fengu flottan stuðning úr stúkunni. Umgjörðin til fyrirmyndar og skemmtilegt körfuboltakvöld að baki. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira