Segja engan fund á dagskrá Agnar Már Másson skrifar 25. apríl 2026 08:21 Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, er hér fyrir miðju. AP/Utanríkisráðuneyti Íran Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad.
Þúsundir hafa fallið í stríðinu í Íran sem staðið hefur yfir í tæplega tvo mánuði. Auk þess hafa átökin sett alþjóðahagkerfið á hliðina þar sem olía hefur snarhækkað í verði vegna lokana við Hormússund. Pakistan hefur verið milliliður stríðandi fylkinga og friðarumleitanir hafa áður átt sér stað í Íslamabad, höfuðborg landsins. Í yfirlýsingu Hvíta hússins í gær sagði að Steve Witkoff, fremur sérstakur erindreki Bandaríkjanna, og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, myndu leggja af stað til Íslamabad í dag, laugardag, til þess að funda með Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans. Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði Írana hafa óskað eftir fundinum. Pete Hegseth varnarmálaráðherra, eða stríðsmálaráðherra, sagði að Íranir hefðu tækifæri til að gera „góðan díl“ við Bandaríkin. Það eina sem Íranir þyrftu að gera væri að hverfa frá öllum áformum um kjarnorkuvopn, sagði hann. Í gær kom Abbas Araqchi, utanríkisráðherra Írans, til Íslamabad en talsmaður ráðuneytis hans skrifaði á X í gær að íranskir ráðamenn hefðu það ekki á dagskrá að funda með fulltrúum Bandaríkjanna og að stjórnvöld í Teheran myndu frekar tala við milligöngumenn. Hvíta húsið hefur ekki brugðist við þessu. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írana, er í Íslamabad.EPA Bandaríkin og Íran hafa staðið í eins konar þrátefli síðustu vikur; Íran hefur að mestu lokað Hormússundi, sem er siglingarleið fyrir um fimmtung af olíuflutningum heimsins, og á meðan hafa Bandaríkin hindrað olíuútflutning Írans um sundið. Stríðið, sem nú er komið á níundu viku, hefur ýtt orkuverði upp í hæstu hæðir í mörg ár, ýtt undir verðbólgu og dregið úr hagvaxtarhorfum á heimsvísu, skrifa Reuters. Trump sagði Reuters í gær, föstudag, að Íranir hygðust leggja fram tilboð sem átti að miða að því að uppfylla kröfur Bandaríkjanna. „[Íranir] eru að gera okkur tilboð og við verðum að Hann sagðist ekki vita hvað fælist í tilboðinu. Hann neitaði að segja við hvern Washington væri að semja. „En við erum að eiga við fólkið sem er við völd núna,“ sagði hann þó. Leavitt fjölmiðlafulltrúi sagði að Bandaríkin hefðu séð nokkur framfaraskref af hálfu Írana undanfarna daga og vonuðust til að sjá frekari vendingar um helgina. Hún sagði að J.D. Vance varaforseti væri jafnvel tilbúinn að ferðast til Pakistans líka. J.D Vance mætir mögulega til Pakistan, að sögn Leavitt. EPA/WILL OLIVER Síðustu umleitanir varaforsetans fyrir tveimur vikum skiluðu þó litlum árangri. Þeir Vance, Witkoff, Kushner og Araqchi auk Mohammad Baqer Qalibaf slitu friðarviðræðum á laugardaginn fyrir tveimur vikum sem leiddi til þess að Bandaríkin lokuðu Hormússundi.
Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira