Upp­gjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálf­leik

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Úr leik liðanna í kvöld
Úr leik liðanna í kvöld Vísir/Pawel

Valur sópaði Fram úr leik í undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. Lokatölur á Hlíðarenda 31-27 sigur Vals sem vinnur einvígið 3-0 og mætir annað hvort ÍBV eða liði Hauka í úrslitaeinvíginu.

Leikurinn byrjaði jafnt milli liðanna en tapaðir boltar og misheppnaðar sendingar hjá Fram olli því að Valskonur tóku fljótt forystuna í leiknum.

Tveir fimm mínútna kaflar án marka einkenndu að vissu leyti fyrri hálfleikinn en Valskonur voru þó töluvert betri aðilinn og leiddu með fimm mörkum þegar flautað var til hálfleiks.

Stuðningsmenn Vals létu sig hverfa í hálfleik en kom þá í ljós að farið var stutta ferð í geymsluna á Hlíðarenda og kústarnir sóttir.

Síðari hálfleikur líktist þeim fyrri þar sem Valskonur voru með yfirhöndina allan tímann. Þrátt fyrir góða róteringu á liði Vals tókst Fram ekki að minnka bilið og Valskonur sigruðu með fjórum mörkum, 31-27.

Atvik leiksins

Elísabet Millý Elíasardóttir fékk tækifæri í marki Vals í kvöld í seinni hálfleik og stóð sig afar vel. Stuðningsmenn Vals tóku einnig vel á móti henni.

Stjörnur og skúrkar

Lilja Ágústsdóttir og Lovísa Thompson voru markahæstar hjá Val með fimm mörk hvor.

Hjá Fram var Hulda Dagsdóttir atkvæðamest með níu mörk.

Stemning og umgjörð

Fínasta stemning á Hlíðarenda en þó örlítið meiri Valsmegin.

Dómarar

Það reyndi lítið á dómaratvíeyki kvöldsins sem stóð sig með prýði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira