Upp­gjörið: Haukar-FH 35-36 | Ná­grannarnir sendu Hauka í sumar­frí

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Daníel Freyr Andrésson varði tvö skot í röð á lokasekúndum leiksins og tryggði FH sigur og sæti í lokaúrslitunum.
Daníel Freyr Andrésson varði tvö skot í röð á lokasekúndum leiksins og tryggði FH sigur og sæti í lokaúrslitunum. Vísir/Pawel

FH sigraði Hauka 35-36 og sópaði Haukum því í sumarfrí. FH eru komnir í undanúrslit í úrslitakeppninni eftir 3-1 sigur í einvíginu gegn nágrönnunum í Haukum.

Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn úr Haukum sem náðu þriggja marka forystu á fyrsta þriðjungi fyrri hálfleiks. FH tókst þá að minnka muninn með áhlaupi og tókst að komast yfir með einu marki.

Síðustu tólf mínútur hálfleiksins tók við arfa slakur kafli hjá Haukum með töpuðum boltum og misheppnuðum skotum. Liðið skoraði þá einungis fjögur mörk á kaflanum. FH nýtti sér það og leiddi með fimm mörkum þegar flautað var til hálfleiks, 14-19.

Haukar byrjuðu síðari hálfleikinn ágætlega og tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk. FH-ingar voru þó ekki lengi að að ná forystunni aftur upp í fimm mörk.

Haukar náðu þá fínu áhlaupi og tókst að minnka muninn niður í eitt mark. Darri Aronsson fékk þá tveggja mínútna brottvísun og FH tókst að vinna upp þriggja marka forskotið aftur.

Ágúst Birgisson fékk tveggja mínútna brottvísun þegar FH leiddi með tveimur mörkum, 34-36. Það var allt stál í stál og Haukum tókst að minnka muninn niður í eitt mark aftur. 

Aron Rafn Eðvarðsson varði síðasta skot FH í leiknum og áttu Haukar þá tuttugu sekúndur til að jafna leikinn.  Daníel Freyr Andrésson gerði þá einstaklega vel og varði frá Skarphéðni Ívari Einarssyni og Jóni Ómari Gíslasyni sem náði frákastinu.

Niðurstaðan 35-36 fyrir FH og Haukar sópaðir í sumarfrí. FH mætir Val í úrslitum sem hefjast í næstu viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira