Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2026 23:17 Sænski handboltaáhugamaðurinn mætti á leikinn á rafskutlu sinni og var með ljósin kveikt sem blinduðu markvörð hins liðsins. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/ Ian Forsyth Hinn 63 ára gamli Roland komst óvænt í sviðsljósið í sænsku úrslitakeppninni í handbolta á dögunum en vegna hans þurfti að gera hlé á leiknum.
HK Malmö og Ystad voru að spila í átta liða úrslitum þegar dómararnir stöðvuðu skyndilega leikinn þegar tvær mínútur voru eftir. Markvörður gestanna í Ystad fór til dómarans og benti upp í stúku. Eitthvað hinum megin í höllinni blindaði hann. Dómarinn tók þá ákvörðun að stöðva leikinn. Ástæðan var að umræddur Roland var mættur á leikinn á rafskutlunni sinni og það sem verra var að hann gleymdi að slökkva ljósin. Ljósið á rafskutlu Rolands skein beint í andlitið á markverði Ystad. Helsta áhugamál Rolands er íþróttir. Á sunnudaginn spiluðu fyrst handboltaliðið hans, Ystads IF, og síðan fótboltaliðið, Malmö FF, leiki nálægt hvort öðru. Þá greip hann tækifærið til að sjá bæði uppáhaldsliðin sín. Starfsmaður leiksins fór upp til Rolands og hvort sem hann bað hann um að slökkva ljósið eða ekki þá var lokaniðurstaðan að loka dyrunum sem hann hafði komið inn á rafskutlunni. „Ég hafði smá áhyggjur af því að ég myndi ekki ná á milli leikvanganna, maður veit jú að MFF hefur marga stuðningsmenn á sínum leikjum. Þess vegna fór ég aðeins fyrr úr stúkunni fyrir fatlaða í Baltiska hallen og fann opnar dyr út að stúkunni þar sem ég gat séð lok handboltaleiksins,“ segir Roland við Sydsvenskan. Hann er glaður yfir því að það hafi verið markvörður Ystad sem blindaðist. „Ef það hefði verið markvörður Malmö sem ég truflaði hefði kannski orðið mikið uppnám. Að ég hefði gert það viljandi. Einhver hefði kannski jafnvel sakað Ystad um að þetta hafi verið gert meðvitað, allt hefði getað farið til fjandans þá.“ Eftir að atvikið vakti athygli fékk hann leikmiða á leikinn á fimmtudaginn frá Ystads IF. Þar mun hann einnig afhenda leikboltann, auðvitað á rafskutlunni sinni. Ystad vann leikinn og er 2-1 yfir í einvíginu. Sigur á heimavelli í næsta leik tryggir liðinu sæti í undanúrslitunum. Hér fyrir neðan má sjá atvikið á samfélagsmiðlum sænska ríkisútvarpsins. View this post on Instagram A post shared by SVT Sport (@svtsport)
Sænski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport „Hann sagði já takk“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira