Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir og Halldóra Ingibergsdóttir skrifa 19. apríl 2026 12:03 Oft er þörf en nú er hún orðin að neyð. Á sama tíma og ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala um farsæld barna, snemmtæka íhlutun og mikilvægi þess að styðja foreldra, hefur verið tekin ákvörðun um að stöðva fjárveitingar til Foreldrahúss. Sú ákvörðun þýðir einfaldlega eitt: að starfsemin mun loka 1. maí ef ekkert verður að gert. Þetta er ekki kerfisvilla. Þetta er ákvörðun og ábyrgðin er skýr. Hér bera heilbrigðisráðherra, Alma Möller, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson og mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland sameiginlega ábyrgð. Allir þessir ráðherrar hafa talað fyrir aukinni samvinnu, snemmtækri íhlutun og bættri þjónustu við börn og fjölskyldur. Þau bera öll ábyrgð á því að eitt öflugasta fyrirbyggjandi úrræði landsins fyrir börn og foreldra sé nú að hverfa. Það er ekki nóg að tala. Það þarf að standa við það sem sagt er. Úrræði sem virkar – en er samt lagt niður Foreldrahús hefur í áratugi verið lykilúrræði fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda. Á hverju ári leita 1.500–1.800 foreldrar þangað vegna vanda um 600 ungmenna. Þetta er ekki smávægilegt úrræði. Þetta er burðarstoð. Ríkið lét sjálft gera úttekt á starfseminni. Niðurstaðan var skýr: mikil ánægja með þjónustuna og staðfesting á því að snemmtæk íhlutun sparar samfélaginu verulegan kostnað til framtíðar. Samt er fjármagnið tekið af. Ef þetta er ekki úrræði sem á að styðja, hvaða úrræði á þá að styðja? Farsæld barna – í orði eða á borði? Stjórnvöld hafa lagt mikla áherslu á farsæld barna. Talað hefur verið um að grípa börn fyrr, styðja foreldra betur og samræma þjónustu. Foreldrahús er nákvæmlega slíkt úrræði. Að leyfa því að loka er ekki bara skref aftur á bak, það grefur undan þeirri stefnu sem stjórnvöld hafa sjálf kynnt. Þetta er prófsteinn á trúverðugleika ráðherra. Raunveruleikinn sem ráðherrar þurfa að horfast í augu við Reynsla foreldra segir meira en allar skýrslur: „Það er svo sorglegt að það sé verið að loka Foreldrahúsi. Það bjargaði mér algjörlega þegar sonur minn var í neyslu. Það er svo mikilvægt að hafa þennan stuðning – að standa ekki einn með erfiðleikana. Það er algjörlega út í hött að það sé verið að loka.“ „Foreldrahúsi þakka ég fyrir að ég eigi gott líf í dag Það frábæra starf sem þar var og er fullnægði öllu því sem foreldrar sem eiga erfið börn í neyslu þurfa á að halda. Foreldrahús verður að halda áfram að vera til staðar fyrir okkur “ Þetta eru ekki einstaka sögur. Þetta er raunveruleiki fjölskyldna um allt land. Ekki sparnaður – heldur dýr mistök Að loka Foreldrahúsi er ekki sparnaður. Það er ákvörðun sem mun: auka álag á heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfi leiða til alvarlegri vanda hjá ungmennum og kosta samfélagið meira til lengri tíma Þetta er niðurskurður á versta mögulega stað það er að segja,í forvörnum. Tíminn er að renna út Foreldrahús stendur frammi fyrir lokun 1. maí. Spurningin er einföld: Ætla ráðherrar að standa við eigin stefnu – eða leyfa þessu að gerast? Ef Foreldrahús lokar, þá er það ekki vegna þess að það virkar ekki – heldur vegna þess að stjórnvöld kusu að standa ekki með því.Og þá bera þau ábyrgð á afleiðingunum. Því skorum við á stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína og sýna vilja í verki og sjá til þess að starfsemi Foreldrahúss haldist óskert Undirskriftalistinn er hér. Höfundar eru mæður sem nutu þjónustu Foreldrahúss fyrir nokkrum árum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi – og enginn skilur neitt í neinu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða, aldursfordómar og mannleg reisn Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Ég: ritskoðaður? Júlíus Andri Þórðarson skrifar Skoðun Fjársjóðurinn í matarkistunni Óli Finnsson skrifar Skoðun Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir skrifar Skoðun Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri! Maríanna Margeirsdóttir skrifar Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson skrifar Skoðun Sérðu táknmálið? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reynsla réttlætir ekki reglubrot Þórður Sigurjónsson skrifar Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Sjá meira
Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifar
Skoðun Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun