Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Ísak Orri Schjetne skrifar 18. apríl 2026 17:35 Eyjakonur fögnuðu gríðarlega í leikslok enda höfðu þær unnið upp sex marka forskot og náð að jafna einvígið. Vísir/Ernir ÍBV lagði Hauka 28-29 í öðrum leik liðanna um sæti í úrslitum Olís-deildar kvenna eftir dramatískar lokamínútur á Ásvöllum. Heimakonur höfðu frumkvæðið lengst af en Eyjakonur gáfust aldrei upp og tryggðu sér sigur með marki á lokasekúndum leiksins. Leikurinn var virkilega jafn fyrstu 25 mínúturnar. Munurinn fór aldrei yfir tvö til þrjú mörk og skiptust liðin á að hafa forystuna. Staðan var 13-11 fyrir Hauka þegar fimm mínútur voru til hálfleiks, en heimakonur nýttu lokakaflann betur og fóru með þriggja marka forystu inn í hléið, 16-13. Birna Berg Haralds var yfirburðamarkahæst hjá gestunum og var hún með sjö mörk úr tíu skotum í fyrri hálfleik. Markverðir liðanna vörðu virkilega vel, Sara Sif hjá Haukum varði frábærlega og var með 41 prósent nýtingu í hálfleik, á meðan Amalie Frøland stóð einnig vaktina vel hjá ÍBV. Haukakonur byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og náðu mest fimm marka forskoti þegar um stundarfjórðungur var eftir, 25-20. Þá virtist sem heimakonur væru að slíta sig frá gestunum en gestirnir neituðu þó að gefast upp og unnu sig jafnt og þétt aftur inn í leikinn. Sterk markvarsla og betri nýting í sókn skilaði sér fyrir þær og var staðan orðin 28-28 þegar um tvær mínútur voru eftir. Lokamínúturnar voru æsispennandi. Amalie Frøland varði mjög mikilvægt skot og kom í veg fyrir að Haukar væru með forystuna í lokasókn leiksins. Í þeirri sókn tók Birna Berg frumkvæðið, fór illa með vörn Hauka og lagði boltann inn á línuna á Kristrúnu Ósk, sem reis upp og skoraði sigurmarkið, 28-29, þegar einungis örfáar sekúndur voru eftir. ÍBV jafnaði þar með einvígið í 1-1 og spennan heldur áfram í baráttunni um sæti í úrslitaleik Olís-deildar kvenna. Atvik leiksins: Þessar lokasekúndur þegar ÍBV er í sókn, virkilega spennuþrungnar sekúndur sem voru lengi að líða, svo kom atvik leiksins þegar um tíu sekúndur voru eftir og Kristrún Ósk skorar sigurmark gestanna. Stjörnur: Það er fremur gefið að Birna Berg fái þennan stimpil, 16 mörk fyrir gestina og virtist aldrei ætla að hætta að skora! Stemning og umgjörð: Virkilega góð stemning hér í dag, vel sótt í stúkurnar og létu áhorfendur ÍBV sig ekki missa í dag! Fagleg og flott aðstaða hérna í Kuehne+Nagel höllinni. Dómarar: Tvíeykið stóð sig vel í dag og gáfu fagleg refsistig þegar á þeim þurfti, leyfðu boltanum að ganga vel fyrir sig. Stefán Arnarson, þjálfari HaukaVísir/Hulda Margrét „Fúlt að vera að leiða allan leikinn og tapa honum svo“ „Vonbrigði, við vorum komin í fimm marka forystu þegar 15 mínútur voru eftir, við hefðum alltaf geta gert betur til að klára þennan leik,“ sagði Stefán Árnason, þjálfari kvennaliðs Hauka, eftir 28-29 tap gegn ÍBV í umspilsleik í úrslitakeppni Olís deildar kvenna. „Þetta eru mjög jöfn lið og þetta verða alltaf erfiðir leikir, þannig það var ekkert óeðlilegt að ÍBV kæmi með áhlaup, en fúlt að vera að leiða allan leikinn og tapa honum svo“ Mikið af auðum mörkum í dag, allir leikmenn nýttir fram á við. „Þær jörðuðu okkur á sjö-á-sex í dag, við þurfum að finna lausn á því og munum gera það“ Staðan núna orðin eitt eitt í einvíginu. „Þetta er bara þannig að það þarf þrjá sigra, það eru allavega tveir leikir eftir í þessu einvígi og við ætlum að taka þá.“ Eyjakonur fagna hér saman sigri á Ásvöllum í kvöld.Vísir/Ernir „Gríðarlega ánægður og stoltur af stelpunum“ Það var létt yfir honum Magnúsi Stefánssyni, þjálfara ÍBV, eftir sigur í dag í virkilega spennandi leik gegn Haukum. „Ég er gríðarlega stoltur af stelpunum mínum og ánægður með að jafna þetta einvígi. Ég meina, þetta eru tvö frábær handboltalið og gott fyrir sportið að fá smá seríu úr þessu. Ég er gríðarlega ánægður og stoltur af stelpunum.“ Öðruvísi orka í liði gestanna í dag frá síðastliðnum tapleik gegn Haukum. „Mér fannst síðasti leikur gegn þeim það var smá haustbragur á okkur, við vorum að koma úr löngu stoppi, við vorum ekki í þessari „átta liða“ keppni, af því að við erum í einu af efstu tveimur sætunum, þannig að við erum að missa af leikjum þar. Svo tekur við landsliðspása þar sem við missum sjö leikmenn í verkefni, svo komum við saman og fáum tvær æfingar, mér fannst það vera svona þessi haustbragur sem ég myndi lýsa á liðinu í síðasta leik, mér fannst Valur bera þess merki líka, en svo er þetta einhvern veginn komið núna, við erum komin með vopnin okkar aftur og stelpurnar eru alveg frábærar. “ Staðan orðin eitt-eitt og stutt bil á milli leikjanna. „Núna þarf að einbeita sér að því að „recover-a“ og það þarf að gerast hratt. En við þurfum að skoða ákveðna hluti varnarlega sem við getum gert betur, við getum hjálpað markmanninum okkar enn þá betur við að koma í veg fyrir að fá svona opin færi á okkur, opin sex metra færi. Þannig að varnarleikurinn er eitthvað sem við munum skoða og svo er þetta leikur mistaka, og það lið sem gerir færri mistök vinnur leikinn, þannig að við höfum gert færri mistök í dag.“ Olís-deild kvenna Haukar ÍBV