Handbolti

Guð­jón Valur missir besta leik­mann liðsins í slæm meiðsli

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson mun eflaust sakna Julian Köster sárlega í næstu leikjum. 
Guðjón Valur Sigurðsson mun eflaust sakna Julian Köster sárlega í næstu leikjum.  Getty/Michael Hundt

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, þarf að leggjast vel yfir leikplönin núna því besti leikmaður liðsins varð fyrir alvarlegum meiðslum.

Gummersbach er á ótrúlegri sigurgöngu í þýsku deildinni og vann um helgina sinn tíunda deildarsigur í röð, 32-24 gegn Wetzlar. Liðið komst þar upp í fjórða sæti deildarinnar og er í baráttu um Evrópusæti við risana fjóra: Magdeburg, Flensburg, Fucshe Berlin og Kiel.

Athygli vakti að Julian Köster, landsliðsmaður Þýskalands og fyrirliði Gummersbach, var ekki með í þeim leik. Hann var með skaddað liðband og þurfti að gangast undir aðgerð í gær.

Julian Köster gekkst undir aðgerð í gær. Sanjin Strukic/Getty Images

Óvíst er hversu lengi Köster verður frá en mögulega mun Gummersbach verða án hans í síðustu sjö leikjum tímabilsins. Þar með gæti Köster hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Gummersbach því í sumar skiptir hann yfir til Kiel.

Ljóst er að Köster verður sárt saknað en hann er ekki bara fyrirliði heldur framlagshæsti leikmaður liðsins, með flestar stoðsendingar (87) og næstflest mörk (125) á tímabilinu. 

Mikið mun nú mæða á Miro Schluroff en íslensku landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson munu líka leggja sitt af mörkum fyrir Gummserbach.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×