Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar Valur Páll Eiríksson skrifar 13. apríl 2026 07:02 Stuðningsmenn Þórs frá Akureyri gátu fagnað vel á Hlíðarenda. Vísir/Guðmundur Besta deildin fór af stað með látum um helgina og nóg af mörkum. Öll lið deildarinnar eru komin á blað og eftir því hélt ekkert þeirra hreinu. Öll mörkin má sjá að neðan.
KR 3-2 Keflavík Búist var við stórsigri KR á nýliðum Keflavíkur og útlit fyrir það þegar Arnór Ingvi Traustason kom KR yfir snemma í hans fyrsta leik í Bestu deildinni. Stefán Ljubicic framherji Keflavíkur skoraði tvö mörk til að snúa leiknum nýliðunum í hag en KR sýndi seiglu. Varamennirnir Stefán Árni Geirsson og hinn 16 ára gamli Alexander Rafn Pálmason tryggðu 3-2 sigur. Klippa: Mörkin úr leik KR og Keflavíkur KA 2-3 Stjarnan Einnig fór 3-2 á Akureyri þar sem Stjarnan vann útisigur á KA. Emil Atlason og Örvar Eggertsson komu Stjörnunni 2-0 yfir snemma en Birgir Baldvinsson minnkaði muninn fyrir heimamenn. Emil skoraði öðru sinni í síðari hálfleiknum en Jakob Héðinn Róbertsson skoraði skömmu síðar fyrir KA-menn sem komust ekki lengra. Fram 3-3 ÍA Leikur Fram og ÍA var tíðindalítill framan af. Atli Þór Jónasson skoraði í sinni frumraun fyrir Fram til að koma liðinu yfir snemma í síðari hálfleik. Viktor Jónsson jafnaði áður en nýi maðurinn, Markús Páll Ellertsson, skoraði tvö fyrir ÍA í fyrsta leik og kom liðinu 3-1 yfir áður en Sigurjón Rúnarsson minnkaði muninn og Kennie Chopart bjargaði svo stigi í blálok leiks. 3-3 jafntefli þar. Valur 1-2 Þór Ak. Nýliðar Þórs frá Akureyri áttu draumabyrjun. Þeir lentu að vísu undir þökk sé marki Dags Orra Garðarssonar sem skoraði þar með í frumraun sinni í deildinni. Christian Jakobsen jafnaði áður en Ingimar Arnar Kristjánsson skoraði laglegt sigurmark undir lok leiks við mikinn fögnuð. Þór vann 2-1 á Hlíðarenda. ÍBV 1-1 FH Snemma í gær áttust ÍBV og FH við í Vestmannaeyjum. Viggó Valgeirsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild til að koma ÍBV yfir fyrir hlé en Kári Kristjánsson tryggði FH stig í frumraun sinni fyrir félagið. Víkingur R. 1-1 Breiðablik Á föstudaginn var skildu Víkingur og Breiðablik jöfn 1-1. Kristófer Ingi Kristinsson kom Breiðabliki yfir snemma leiks en Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Víkingi stig með laglegu marki eftir slæm mistök Antons Ara Einarssonar í marki Blika.
Besta deild karla KR Keflavík ÍF KA Stjarnan ÍA Fram Þór Akureyri Valur ÍBV FH Breiðablik Víkingur Reykjavík Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira