„Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 11:32 Eftir langa dvöl í næstefstu deild sneri Fram aftur í deild þeirra bestu 2022. vísir/guðmundur Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir raunhæft fyrir Fram að stefna hátt. Það vinni með liðinu að leikmannahópurinn hafi verið tilbúinn snemma á undirbúningstímabilinu.
Fram er spáð 7. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Fram lenti í 5. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili og náði þar með sínum besta árangri í fimmtán ár. Rúnar Kristinsson er að hefja sitt þriðja tímabil sem þjálfari Fram og Bjarni býst við að liðið stefni á að ná svipuðum árangri og í fyrra. „Það er sennilega bara svipað og þeir voru með í fyrra, að vera í efri hlutanum og komast í það að spila í efri úrslitakeppninni. Rúnar er snemma tilbúinn með liðið sitt og ég held að það komi til með að hjálpa honum í byrjun mótsins sem skiptir alltaf miklu máli þrátt fyrir það að tímabilið hafi breyst mikið hjá okkur. Byrjunin er rosalega mikilvæg,“ sagði Bjarni er hann var beðinn um að rýna í lið Fram. Klippa: Besta-spáin 2026 - 7. sæti „Þannig að já, topp sex og vonandi taka þeir skrefið lengra og keppa af alvöru um það að komast inn í topp þrjá.“ Liðsheildin er aðalvopnið Bjarni telur liðsheild Fram vera einkar sterka og öfluga sem komi til með að hjálpa í baráttu sumarsins. „Aðalvopnið þeirra er ofboðslega sterkt lið og góður liðsandi sem hefur einkennt liðin hans Rúnars undanfarin ár. Þannig að ég held að það verði aðalvopnið þeirra,“ sagði Bjarni. „Ef þeim tekst fyrr að halda betur dampi gætu þeir alveg farið í það. Og það er náttúrulega það sem deildin kannski þarf á að halda, að við fáum líka dálítið meiri baráttu um þetta þriðja sæti. Þannig að þessi efstu sex lið séu öll raunverulega að keppa að einhverju sem gerir endinn á mótinu mjög skemmtilegan.“ Fram tekur á móti ÍA í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 19:30 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla Fram Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira