Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Lovísa Arnardóttir skrifar 26. mars 2026 12:33 Ekki er hægt að sigla að höfninni í Þorlákshöfn eins og er vegna veðurs. Vísir/Vilhelm Herjólfur bíður í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Þorlákshöfn eftir því að sigla að landi. Ófært er eins og er. Skipið lagði af stað klukkan níu í morgun og var áætlað rétt fyrir klukkan 12 að landi. „
Það er ófært eins og staðan er núna. Við reiknum með því að fljótlega lygni og þá verði fært þarna inn. Hann bíður þangað til aðstæður batna. Hann hefði átt að vera koma inn um tólfleytið og hann er um tuttugu mínútum frá,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, í samtali við fréttastofu. Ólafur segir því um klukkutíma seinkun á áætlun, örfáir hafi átt bókað í ferðina klukkan 12 til Vestmannaeyja en það verði einhver seinkun á henni og líklega einnig á ferðunum sem voru áætlaðar eftir það. Skipið hafi átt að sigla af stað aftur frá Vestmannaeyjum klukkan 16 en það standist líklega ekki. Hann segir þetta hafa gerst áður og það sé algengara í Landeyjahöfn. Hann segir ferðina hafa gengið vel frá Vestmannaeyjum, siglt hafi verið undan vindi en ferðin gæti þá orðið erfiðari til baka á eftir. Hann segir að þegar skipið kemst í land eigi hann ekki von á því að aflestun og lestun taki langan tíma. Sett verði tilkynning á heimasíðuna um leið og nánari tímasetningar liggja fyrir.
Ölfus Vestmannaeyjar Herjólfur Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira