Hamar/Þór - Keflavík 88-85 | Keflavík fékk Hamarshögg í Þorlákshöfn Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar 21. mars 2026 19:32 Jadakiss Guinn og stöllur í Hamri/Þór fara í umspil um að halda sér uppi en sendu Ármann um leið niður um deild. vísir/Anton Hamar/Þór vann Keflavík í fjörugum leik í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Hamar/Þór hefur verið í botnbaráttu bróðurpartinn af tímabilinu á meðan Keflvíkingar hafa verið staðsettir fyrir ofan miðja deild. Lokatölur í dag 88-85 Hamar/Þór í vil. Það vakti athygli í upphituninni að Sara Rún Hinriksdóttir og Sofie Tryggedsson Preetzmann voru í borgaralegum klæðnaði á hliðarlínunni. Sara Rún meiddist í fyrri landsleiknum um daginn og Hörður Axel vill gefa henni tíma til að jafna sig. Sofie meiddist einnig lítillega í vikunni og þurftu Keflvíkingar að ráða ráðum sínum og stoppa upp í þessi stóru göt. Fyrsti leikhluti fór vel af stað. Heimakonur í Hamar/Þór voru vel stilltar og spiluðu agaðan sóknarleik. Það sást strax að Keflavík saknaði Söru Rúnar og Sofie í sóknarleiknum. Það vantaði einhvern til að stíga upp og fékk Angelina Turmel það hlutverk. Hún var í stöðugum slagsmálum við Jovönu Markovic undir körfunni strax í upphafi. Hamar/Þór náði að loka á Keishana Washington í fyrsta leikhluta. Staðan í lok fjórðungsins var 22-14 Hamar/Þór í vil. Í öðrum leikhluta náðu Keflvíkingar að þjappa sig saman og saxa á forskot heimakvenna. Angelina Turmel fékk nóg að borða í sóknarleiknum og þakkaði traustið. Hún dreif Keflvíkinga áfram og Keishana Washingon náði að slíta sig lausa og taka meiri pláss í sókninni. Hjá Hamar/Þór voru Ana Clara Paz og Mariana Duran gríðarlega seigar og Jovana Markovic hnoðaðist undir körfunni. Jadakiss Nashi Guinn bretti upp ermarnar og sótti hart að körfunni. Þær héldu gestunum í armslengd, stjórnuðu hraðanum og fóru með tíu stiga forskot inn í hálfleik, 36-26. Leikurinn opnaðist meira í þriðja leikhluta þar sem bæði lið fóru að skora af meiri krafti. Keflavík minnkaði muninn með auknum hraða og árásargirni, en Hamar/Þór svöruðu fyrir sig í hvert skipti og héldu forskotinu. Anna Ingunn Svansdóttir steig upp hjá Keflvíkingum og spennan var mikil. Fyrir lokaleikhlutann voru heimakonur enn yfir, 61-53, og virtust hafa góð tök á stöðunni. Í fjórða leikhluta snerist leikurinn hins vegar við. Keflavík herti varnarleikinn og fór að hitta betur úr skotum á sama tíma og Hamar/Þór áttu erfiðara með að loka leiknum. Munurinn minnkaði jafnt og þétt og spennan jókst með hverri sókn. Á lokamínútunum nýtti Keflavík reynslu sína betur. Þær kláruðu sóknirnar sínar, fengu mikilvæg stig og náðu að snúa mómentinu sér í hag. Þær söxuðu á muninn og lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Heimakonur þjöppuðu sér saman og héldu þetta út. Lokatölur 88-85 Hamar/Þór í vil. Þær geta þakkað liðsheildinni sigurinn. Þær létu boltann rúllu vel og bitu fast frá sér þegar Keflvíkingar nálguðust þær í stiga skorinu. Hamar/Þór leiddi allan leikinn og hafa nú unnið tvo leiki í röð. Þær felldu með sigrinum Ármann en fara í umspil með þremur liðum úr 1. deild, um sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Atvik leiksins Atvikin í þessum leik voru mörg. Það var hreinn unaður að horfa á baráttuna milli þeirra Jovönu Markovic og Angelinu Turmel. Þessar stóru og sterku stelpur buðu upp á tveggja turna tal. Það var magnað að sjá þær henda sér í alla bolta og hnoðast inn í teignum. Stjörnur og skúrkar Stjörnur Hamar/Þórs voru þrjár. Fyrst ber að nefna Jovana Markovic sem skoraði 25 stig í leiknum og reif niður sjö fráköst. Næst ber að nefna Jadakiss Nashi Guinn sem skoraði 22 stig og var með 6 fráköst og 6 stoðsendingar. Síðust en alls ekki síst var svo Ana Clara Paz sem skoraði 21 stig, var með átta fráköst og fimm stoðsendingar. Hjá Keflavík eiga Keishana Washington og Angela Turmel mikið hrós skilið. Turmel fer heim marin og meidd eftir slagsmálin. Dómararnir Dómarasveit dagsins skipuðu Jóhannes Páll Friðriksson, Eggert Þór Aðalsteinsson og Guðmundur Ragnar Björnsson. Tríóið stóð sig fínt en virkuðu stressaðir á köflum. Keflvíkingar voru pirraðir yfir ákvörðunartökum þeirra og skil ég þá bara vel. Stemmning og umgjörð Hamar/Þór hefur verið að leika til skiptis í Hveragerði og í Þorlákshöfn. Í þetta skiptið var leikið í Höfninni og hamingjan var allsráðandi. Lúðrasveit Þorlákshafnar hélt teiknimynda tónleika á sama tíma hinum meginn í bænum. Því var keppt um athygli bæjarbúa. Í svona litlu bæjarfélagi er lúðrasveitin bæjarprýði. Hefði ekki verið skynsamara að hafa einn viðburð í einu? Viðtöl Hallgrímur Brynjólfsson þjálfari Hamar/Þórs var hreinlega búinn á því í viðtali eftir leik: „Ég er ekkert eðlilega ánægður með andann í hópnum. Þær lögðu sig 100% í verkefnið, hreyfðu sig vel án bolta og spila vörnina gígantískt vel. Keflavík var ekki að fá mörg hraðaupphlaupsstig í kvöld.“ Hann sagðist vera gríðarlega ánægður með framlagið hjá sínum stelpum. Ana Clara, Jóhanna og Mariana voru ótrúlega seigar. Faldi fjársjóðurinn „Mariana steig vel upp og svo er Jada einfaldlega á öðrum klassa. Ég var að fá ógeðslega flott varnarframlag frá Bergdísi og Jóhönnu Ýr. Dagrún Inga fær loksins tækifæri hjá mér og gerir frábæra hluti. Þú heyrir að ég veit ekkert hvað ég er að segja hérna. Ég fer bráðum að þakka mömmu og pabba“. Hallgrímur sagði að með þessu væru Ármenningar fallnir og Hamar/Þór fær að spila við Selfoss um sæti í deild þeirra bestu. Sannkallaður Suðurlandsslagur sem Hallgrímur telur vera erfiða rimmu. „Ég er ekkert eðlilega ánægður með hópinn. Það er meira en að segja það að vera kominn á þennan tímapunkt á tímabilinu og vera með jafn góðan anda og vilja til þess að gera vel. Markmiðið var ekki að berjast við fall og ég tek við frábæru búi frá Hákoni Hjartar. Ég er það heppinn að fá Sævar með mér sem aðstoðarþjálfara. Hann er falinn fjársjóður. Held að hann sé hreinlega áttunda undur veraldar“. Hallgrímur var spurður út í árekstur þessa mikilvæga leiks og tónleika lúðrasveitar Þorlákshafnar og hafði þetta að segja: „Ég er ekkert eðlilega sorgmæddur að missa af þessu. Lúðrasveitin er next level góð. Ég er sár að missa af þessu en ánægður að þau séu með tónleika. Áreksturinn kom samt ekki að sök“. Sagði Haddi og brosti út í annað. Hörður: „Söknum auðvitað Sofie og Söru“ Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfari Keflavíkur var brúnaþungur í lok leiks. Aðspurður sagði hann: „Það var súrt að tapa þessu en gott að fá close leik. Gott að fá leik til að reyna að finna lausnir og við vorum í því næstum allan leikinn“. Átti hann þar við þá staðreynd að vera án Sofie og Söru Rúnar. Hörður Axel sagði að hans stelpur hefðu lent á afturfótunum til að byrja með. Hann var sáttur að stelpurnar hefðu náð að koma til baka og ekki gefist upp. Hörður sagði að þótt þær hefðu fundið lausnir þá hefðu þau öll viljað fá meira út úr leiknum. „Við söknum auðvitað Sofie og Söru Rúnar en við erum með djúpan mannskap. Við höfum viljað standa fyrir það í vetur að ef einhver dettur niður þá stígur önnur upp í staðinn“. Aðspurður út í meiðsli þeirra sagði Hörður: „Þær verða klárar í næsta leik held ég. Eða vona það allaveganna. Þetta eru þannig meiðsli að þetta sé meira dagur til dags. Sjáum hvernig þær verða á morgun og svo tökum við stöðuna“. Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Hamar Þór Þorlákshöfn
Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Íslenski boltinn
Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Íslenski boltinn