Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Kjartan Kjartansson skrifar 15. mars 2026 07:01 Sandsteinshraukar við strönd sænsku eyjarinnar Gotlands. Vísindamenn telja að hentugt sé að farga kolefni í sandsteini undir sjávarbotninum þar. Vísir/Getty Sænskir jarðfræðingar telja að aðstæður séu til þess að farga hundruð milljónum tonna af koltvísýringi í berggrunni utan stranda Svíþjóðar undir Eystrasalti. Aðferðin væri sambærileg við tækni sem íslenska fyrirtækið Carbfix hefur þróað.
Tveir staðir til kolefnisförgunar koma helst til greinar eftir rannsókn sænsku jarðfræðistofnunarinnar (SGU). Annar þeirra er suðaustan af Gotlandi en hinn suður af Skáni, syðsta hluta Svíþjóðar. Rannsóknir stofnunarinnar benda til þess að hægt væri að koma allt að þrjú til fjögur hundruð milljónum tonna af koltvísýringi fyrir á svæðunum á þrjátíu árum. Líklegt sé hins vegar að þau geti tekið við um fimm milljónum tonna á ári sem gerði 150 milljónir tonna yfir þrjá áratugi. Uppleystum koltvísýringi yrði dælt niður á um 1.250 metra dýpi í sandsteinslög þar sem hann bindist í steindir. Á slíku dýpi yrði rúmmál hans um 300 sinnum minna en á yfirborðinu. „Við teljum að þetta lofi góðu. [...] Svo lengi sem berggrunnurinn fyrir ofan er þéttur þá er þetta ekkert vandamál,“ segir Sofie Lindström, verkefnastjóri hjá SGU við sænska ríkisútvarpið um svæðið. Binda koltvísýring í sandstein Helsta hindrunin er kostnaðurinn. Jarðfræðistofnunin segir frekari rannsókna þörf til þess að meta hentugleika jarðlaganna til kolefnisförgunar. Þær rannsóknir eigi að taka þrjú ár. Í kjölfarið þyrfti svo milljarða sænskra króna í uppbyggingu stöðva sem gætu tekið við og fargað koltvísýringnum. Norðmenn binda nú þegar koltvísýring undir sjónum í gömlum olíuborholum. Á Íslandi hefur dótturfélag Carbfix áform um að taka við koltvísýringi frá evrópsku iðnaði og binda í jörðu með tækni sem þróuð var við Hellisheiðarvirkjun. Coda Terminal, dótturfélag Carbfix, hefur áhuga á að taka við og farga koltvísýringi frá evrópskum iðnaði á Íslandi. Hann yrði fluttur á fljótandi formi með skipum til landsins.Carbfix Lindström segir að það verði líklega að minnsta kosti áratugur þangað til kolefnisförgun gæti verið möguleg við strendur Svíþjóðar. „Ef það verður ódýrara að farga utan við Svíþjóð, til dæmis vegna þess að flutningsleiðir eru styttri, er ástæða til þess að ráðast í þetta þarna. En ef það væri ódýrara að flytja þetta til Noregs þá er engin ástæða til þess að nota sænskt hafsvæði,“ segir Robert Höglund, sérfræðingur í kolefnisbindingu við fyrirtækið CDR. Nauðsynlegt til að loftslagsmarkmið náist Kolefnisbinding og förgun er nauðsynleg samhliða samdrætti í losun til þess að menn geti náð markmiðum sínum um að takmarka hnattræna hlýnun. Það á sérstaklega við vegna losunar frá ýmis konar iðnaði þar sem erfitt er að koma í veg fyrir útblástur gróðurhúsalofttegunda. Vegna þess að koltvísýringur safnast upp í lofthjúpnum til fleiri alda og jafnvel ársþúsunds verður einnig nauðsynlegt að þróa tækni til þess að fjarlægja kolefni beint úr lofti og farga því varanlega ef menn fara langt fram úr sér í losun á þessari öld.
Loftslagsmál Svíþjóð Tækni Hafið Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira