„Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. mars 2026 12:01 Þorgerður Katrín undirstrikaði að það yrði ekki skrifað undir slæman samning. Vísir/Lýður Valberg Íslensk stjórnvöld hefðu náð betri árangri í samningaviðræðum um undanþágur frá losunarheimildum ETS-kerfisins hefði Ísland verið hluti af Evrópusambandinu að mati utanríkisráðherra. Hún ítrekaði orð sín um að hún myndi ekki skrifa undir slæman samning.
Losun alþjóðaflugs á gróðurhúsalofttegundum innan Evrópusambandsins fellur undir ETS-viðskiptakerfið sem Ísland á aðild að í gegnum EES-kerfið. Séríslensk undanþága frá sérstökum losunarheimildum rennur út í loks árs en í henni felst leyfi til að niðurgreiða losun flugfélaga með því að gefa þeim losunarheimildir. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra telur íslensk stjórnvöld ekki hafa komið nægilega snemma að ferlinu til að tryggja íslenskum flugfélögum betri skilyrði. „Við höfum blessunarlega fengið undanþágu og erum að reyna að framlengja hana til þess að svona skapa svigrúm fyrir enn frekari og dýpri samtöl og reyna að passa að Icelandair og okkar fyrirtæki séu í skjóli í einhvern tíma þar sem við náum þá skýrri niðurstöðu fyrir okkur,“ sagði Þorgerður í Sprengisandi nú í morgun. „En þetta er dæmi um það að, að mínu mati, að það er vont að við vorum ekki þarna með frá byrjun. Við náðum ekki að fylgja þessu strax og koma okkar sjónarmiðum á framfæri og það náttúrulega bara verða, náttúrulega bara það að Evrópusambandið verður að átta sig á því að við erum eyja og erum ekki tengd við, við meginlandið eins og aðrir.“ Til stendur að framlengja undanþáguna út árið 2027. Þorgerður tekur einnig fram að fyrri stjórnvöld hefðu mátt stíga fastar inn. „En á meðan þess vegna erum við að kaupa okkur tíma, þá bindum við vonir við það að það komist einhver skynsamleg lausn í þetta sem taki tillit til okkar sérstöðu þar. Þetta er alveg rétt, þetta er eitt af því sem ég held að við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins heldur en utan,“ segir hún. Á föstudag greindu formenn ríkisstjórnarflokkanna frá því að til standi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Þetta er bara mjög einföld spurning. Eigum við að halda þessu áfram, aðildarviðræðum, sjá hvað í þessu felst? Eða ekki og sumir vilja ekkert vita meira og þá er það bara svar.“ Fiskveiðin í forgangi Þorgerður ítrekaði orð sín frá því á föstudag að það kæmi ekki til greina að skrifa undir aðildarsamning sem feli ekki í sér fyrirsjáanleg yfirráð Íslendinga á auðlindum og fiskiveiðistjórn. „Við þurfum að tryggja yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni,“ sagði hún. „Mér þætti það frekar líklegt að það yrði byrjað bara strax á fiskveiðistjórnarkaflanum. Ég mun ekki samþykkja samning og ég mun ekki skrifa undir hann ef að hann fæli ekki í sér ótvíræð yfirráð Íslendinga yfir fiskveiðilögsögunni.“ Hún segir fyrirhugaða atkvæðagreiðslu og möguleikann á því að Ísland gangi í Evrópusambandið ekki snúast um samband ríkjanna í Evrópu. „Það samband er gott. Það er hins vegar það sem við erum að sjá að út af þessari þróun heimsmála, þá er Evrópusambandið að dýpka sitt eigið samstarf, er að passa enn meira upp á sína hagsmuni, verja sín fyrirtæki og svo framvegis.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Fréttir af flugi Loftslagsmál Evrópusambandið EES-samningurinn Sprengisandur Bylgjan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira