Evrópumeistararnir þurfi að vera upp á sitt besta til að vinna Ísland Aron Guðmundsson skrifar 6. mars 2026 16:31 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir leikmaður Íslands og Georgia Stanway leikmaður Englands Vísir/Samsett Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Evrópumeistara Englands, segir sitt lið þurfa vera upp á sitt besta til þess að hafa betur gegn Íslandi þegar liðin mætast á City Ground í undankeppni HM á morgun.
Wiegman sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem að hún var spurð út í styrkleika íslenska landsliðsins sem laut í lægra haldi gegn heimsmeisturum Spánar í fyrstu umferð undankeppninnar. „Þetta er mjög öflugt lið. Þær eru agaðar, líkamlega sterkar og spila beinskeyttan fótbolta og á miklu tempói. Við höfum horft á undanfarna leiki þeirra, sérstaklega núna síðast gegn Spáni. Við vitum að það verður erfitt að vinna þær.“ Enska liðið muni þó vera mikið með boltann í leiknum, það muni hins vegar reynast þeim mjög erfitt að brjóta íslenska varnarmúrinn. Aðspurð hvort íslenska landsliðið væri að hljóta þá virðingu frá öðrum liðum sem það á skilið hafði Wiegman þetta að segja: „Við erum allavegana ekki að tala um spænska landsliðið núna. Við erum bara að tala um Ísland. Við vitum að leikurinn á morgun verður mjög erfiður. Íslenska liðið er skeinuhætt fram á við, það er erfitt að brjóta þær á bak aftur, við þurfum að vera upp á okkar besta.“ Ljóst er að við ramman reip verður að draga fyrir stelpurnar okkar á morgun gegn Evrópumeisturunum sem eru eitt besta landslið í heimi. Ísland mætir Englandi á City Ground, heimavelli enska úrvalsdeildarfélagsins Nottingham Forest á morgun. Leikur liðanna hefst klukkan hálf eitt og verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Sjá meira