Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. febrúar 2026 12:03 Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens. vísir/ívar Forstjóri Intuens vísar gagnrýni sérfræðinga í heilbrigðiskerfinu alfarið á bug. Hún gefur lítið fyrir rök lækna og segir viðbrögðin enn eitt dæmi um kerfið að verja hagsmuni sína gagnvart nýsköpun.
Intuens býður upp á svonefnda heilskoðun til að greina kvilla og sjúkdóma. Fyrirtækið hefur sótt í sig veðrið á nýjan leik eftir áskoranir undanfarin ár. Töluvert hefur farið fyrir markaðsefni frá fyrirtækinu á síðustu mánuðum þar sem fólk hefur deilt reynslusögum. Í kjölfarið hafa ýmsir sérfræðingar úr heilbrigðiskerfinu stigið fram og gagnrýnt þjónustuna harðlega. Bæði formaður Félags krabbameinslækna og formaður Félags heimilislækna sögðu þjónustuna gera meiri skaða en gagn í gær. „Vissulega takmarkanir á heilskoðun“ Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens, vísar gagnrýni lækna á bug. Það sé leitt að afstaðan hafi ekki breyst á síðustu árum. „Þetta er náttúrulega ekki í fyrsta skipti sem við fáum á okkur gagnrýni úr þessari átt. Ég fagna allri umræðu um heilskoðun því hún er mikilvæg. Mín skoðun er sú að hér er bara enn eitt dæmið um kerfið að verja hagsmuni kerfisins í stað þess að virða rétt fólks til að taka upplýstar ákvarðanir um sína heilsu.“ Hún gefur lítið fyrir þau rök að heilbrigðiskerfið reyni að verja sig fyrir auknu álagi vegna ofgreininga hjá Intuens. „Til að reyna létta undan álaginu erum við með okkar eigin lækna sem fylgja eftir hverju tilfelli fyrir sig. Þannig að fólk þurfi ekki að fara með skýrsluna á sinn heimilislækni og fá úrbætur á henni. Við erum með okkar eigin lækna sem tækla hvert tilfelli fyrir sig.“ Læknar hafa tekið fram að heilskoðanir veiti falskt öryggi og efli heilsukvíða. Steinunn segir fólk alls ekki festast í vítahring sem auki heilsukvíða, þvert á móti sé ekki hægt að bóka tíma með nokkurra mánaða fresti. „Það eru vissulega takmarkanir á heilskoðun og í heilskoðun geta fjölmörg atriði komið fram og í flestum tilfellum þá eru þetta ekki atriði sem þarf að hafa áhyggjur af en getur verið gott að vita. Það er ekki skynsamlegt að bregðast við einhverju sem skiptir ekki máli og það erum við alls ekki að gera.“ Frásögn lækna ekki í takt við raunveruleikann Læknar hafa sagt jákvæðar dæmisögur frá viðskiptavinum heyra til undantekninga. Steinunn segir það ekki draga upp réttmæta mynd af raunveruleikanum. „Við erum með fjölmarga aðila sem lýsa því yfir að Intuens hafi bjargað lífi þeirra og við vitum ekki til þess að fólk hafi orðið fyrir stórtækum aðgerðum sem hafi skaðað það.“ Landlæknisembættið bannaði fyrirtækinu að veita þjónustu í tíð Ölmu Möller sem landlæknir. Heilbrigðisráðuneytið ógilti þá ákvörðun í september 2024. Steinunn segist ekki hafa áhyggjur af því að Alma muni beita sér gegn fyrirtækinu sem núverandi heilbrigðisráðherra. Mál Intuens er enn til skoðunar hjá embætti landlæknis. „Ég bara treysti því að hún sinni starfi sínu af heilindum sem heilbrigðisráðherra. Ég hef ekki áhyggjur af því að embætti landlæknis skipti sér aftur af starfsemi fyrirtækisins.“ Málarekstur gegn SÍ, ríkinu og landlækni Í næstu viku verður mál Intuens gegn íslenska ríkinu og Sjúkratryggingum Íslands tekið fyrir hjá héraðsdómi. Þar vill fyrirtækið meina að ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu með því að bjóða ekki út skoðunarþjónustu með réttum hætti. Þá er fyrirtækið einnig með mál gegn embætti landlæknis en aðalmeðferð í því máli er fyrirhuguð um miðjan marsmánuð samkvæmt upplýsingum frá embættinu sem kýs ekki að tjá sig frekar um málið. „Ég skil alveg þeirra sjónarmið en þetta getur skipt rosalega miklu máli fyrir einstaklinginn að geta fengið val og frelsi til að fara í þessar rannsóknir því einhverjir fá lífsbjörg. Rannsóknin er ekki hugsuð sem almenn lífheilsuaðgerð. Hún er ekki hugsuð sem almenn skimun en fyrir einstaklinginn sem vill fá yfirsýn yfir eigin heilsu getur þetta haft raunverulegt og persónulegt gildi,“ segir Steinunn spurð um það álit lækna að heilskoðun Intuens geri meiri skaða en gagn.
Heilbrigðismál Heilskimanir Krabbamein Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira