Sló heimsmet sem var sett á fæðingardegi hennar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. febrúar 2026 12:01 Keely Hodgkinson glímdi við meiðsli eftir að hafa unnið Ólympíugull í átta hundruð metra hlaupi en er komin aftur á beinu brautina. getty/Martin Rickett Enska hlaupakonan Keely Hodgkinson sló í gær 24 ára gamalt heimsmet í átta hundrað metra hlaupi innanhúss.
Hodgkinson kom í mark á einni mínútu og 54,87 sekúndum á móti í Liévin í Frakklandi í gær. Hún sló þar með heimsmet hinnar slóvensku Jolöndu Ceplak, sem hafði staðið í 24 ár, um eina sekúndu. Ceplak setti metið 3. mars 2002, sama dag og Hodgkinson kom í heiminn. Hodgkinson er aðeins annar Bretinn sem á núgildandi heimsmet í frjálsum íþróttum. Heimsmet Jonathans Edwards í þrístökki hefur staðið frá 1995. Eftir erfiða tíma, í kjölfar Ólympíutitilsins í átta hundruð metra hlaupi á leikunum í París 2024, hefur Hodgkinson byrjað þetta ár af krafti. Hún hljóp átta hundruð metrana á 1:56,33 á breska meistaramótinu fyrir nokkrum dögum og sló svo heimsmetið í gær eins og hún hafði spáð fyrir um. „Mér líður eins og ég eigi að slá þetta met,“ sagði Hodgkinson eftir hlaupið í síðustu viku. Hún stóð sannarlega við stóru orðin og er nú heimsmethafi í átta hundruð metra hlaupi innanhúss. Heimsmetið í átta hundruð metra hlaupi utanhúss (1:53,28) hefur staðið frá 1983 og er í eigu Jarmilu Kratochvilova frá Tékklandi. Besti tími Hodgkinsons utanhúss er 1:54,61. Framundan er Evrópumótið innanhúss sem verður haldið í Póllandi í mars.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag Sjá meira