Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2026 14:08 Sean Duffy, samgönguráðherra, segir að lokað hafi verið fyrir flugumferð um alþjóðaflugvöll El Paso vegna drónaflugs frá Mexíkó. Hann segir ekki af hverju lokunin átti að standa yfir í tíu daga. AP Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) hefur tilkynnt að aftur sé búið að opna fyrir flugumferð til og frá alþjóðaflugvellinum í El Paso í Texas. Lokað var fyrir flugumferð um svæðið í nótt og það án útskýringa og átti lokunin að standa yfir í tíu daga.
Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna, segir að lokað hafi verið fyrir flugumferð vegna þess að glæpamenn frá Mexíkó hafi flogið yfir landamæri ríkjanna, sem liggja gegnum El Paso. Í tilkynningu frá FAA um það að lokuninni sé lokið segir að flugumferð um svæðið standi ekki frammi fyrir neinni ógn en að öðru leyti hafa engar upplýsingar verið gefnar, aðrar en þær sem gefnar voru um lokunina í nótt. Þá var sagt að flugumferð um svæðið hefði verið bönnuð vegna „sérstakra öryggisástæðna“. Hvorki Duffy né FAA hafa sagt af hverju lokunin átti að standa yfir í tíu daga ef hún var sett á vegna drónaflugs frá Mexíkó. The FAA and DOW acted swiftly to address a cartel drone incursion. The threat has been neutralized, and there is no danger to commercial travel in the region. The restrictions have been lifted and normal flights are resuming. https://t.co/xQA1cMy7l0— Secretary Sean Duffy (@SecDuffy) February 11, 2026 Veronica Escobar, þingkona frá Texas og kjördæminu sem El Paso er í, gefur lítið fyrir útskýringar Duffys. Hún sagði á blaðamannafundi í dag að drónum væri reglulega flogið yfir landamærin. Það hefði gerst ítrekað síðan drónar fóru fyrst að fljúga. Þetta hefði ekki verið neitt nýtt, þó flestir vildu losna við þessi drónaflug. Þó búið er að opna fyrir flugumferð til El Paso eru enn takmarkanir á flugferðum í suðurhluta New-Mexico. Escobar sagðist vita af hverju það væri en neitaði að fara nánar út í það. Óvænt lokun Lokunin í nótt kom mörgum á óvart og þá sérstaklega heimamönnum. Forsvarsmenn flugvallarins sögðust ekkert vita um lokunina og það sama mátti segja um ráðamenn í El Paso og þingmenn Texas. Þá fengu fjölmiðlar vestanhafs engin opinber svör heldur. Embættismenn í El Paso hafa kvartað yfir lokuninni og hvernig haldið var á spöðunum varðandi hana. Þeir segja upplýsingaleysið hafa ýtt undir hræðslu íbúa og flugfarþega. Sjá einnig: Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Í skipun FAA í nótt sagði að flugmenn sem fylgdu ekki lokuninni og skipunum flugumferðarstjóra gætu verið handteknir eða jafnvel skotnir niður. Escobar, áðurnefnd þingkona, sagði í morgun að lokunin væri fordæmalaus og kallaði eftir því að opnað yrði aftur fyrir flugumferð. Hún sagði, samkvæmt New York Times, að samkvæmt upplýsingum sem hún og starfsfólk hennar hefðu aflað hefðu íbúar El Paso og flugfarþegar ekki staðið frammi fyrir neinskonar ógn. Samkvæmt heimildum CNN tengdist lokunin einhverskonar hernaðaraðgerð í tengslum við Fort Bliss, sem er herstöð í El Paso. Þaðan flýgur bandaríski herinn meðal annars drónum og þyrlum. New York Times hefur eftir heimildarmanni sem sagður er þekkja til lokunarinnar að hún tengist tilraunum á nýrri tækni til að stöðva dróna. A source with knowledge notes that cartel drones regularly breach US airspace, typically using them for criminal enterprise like delivering supplies, etc. Mostly on the Mexico side of the border, but sometimes they come over to the U.S. side. Needless to say, these incidents… https://t.co/2Co2WUnrxI— Natasha Bertrand (@NatashaBertrand) February 11, 2026 CBS hefur þar að auki eftir sínum heimildarmönnum að drónum hafi verið flogið yfir landamærin frá Mexíkó og herinn hafi grandað þeim, eða í það minnsta reynt það. MS Now hefur eftir ónefndum þingmanni að lokunina megi rekja til samskiptaleysis eða rangra samskipta milli varnarmálaráðuneytisins og FAA. El Paso er 23. stærsta borg Bandaríkjanna, samkvæmt manntali 2020, en í borginni og úthverfum búa um milljón manns. Flugvöllurinn þar þjónustar stórt svæði í suðurhluta Texas og í Nýju-Mexíkó. Talið var að lokunin myndi valda miklum truflunum á ferðalögum fjölmargra Bandaríkjamanna á næstu tíu dögum. Fréttin hefur verið uppfærð margsinnis. Nú síðast klukkan 15:05.
Bandaríkin Fréttir af flugi Mexíkó Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira