Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Kjartan Kjartansson skrifar 2. febrúar 2026 15:58 Elon Musk er einn helsti boðberi hvítrar þjóðernishyggju í krafti samfélagsmiðils síns X. EPA/FRANCIS CHUNG Áform spænskra stjórnvalda um að veita þúsundum manna sem dvelja ólöglega í landinu tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi jafngilda „þjóðarmorði“ á hvítu fólki að mati Elons Musk, ríkasta manns heims. Allt að hálf milljón manna gæti fengið dvalarleyfi.
Minnihlutastjórn Sósíalistaflokksins kynnti áform um að veita fólki sem kom ólöglega til Spánar fyrir síðustu áramót og getur sýnt fram á að það hafi dvalið í landinu í að minnsta kosti fimm mánuði dvalar- og atvinnuleyfi til allt að eins árs í síðasta mánuði. Áætlað er að rúmlega hálf milljón manna, sem margir hverjir vinna í láglaunastörfum eins og í landbúnaði, ferðaþjónustu, umönnun og ræstingum, gæti fengið tímabundið leyfi með þessari aðgerð, að sögn AP-fréttastofunnar. Áformin vekja ekki síst athygli vegna þess að Bandaríkin og flest önnur Evrópuríki stefna í þveröfuga átt í innflytjendamálum í skugga uppgangs fjarhægriflokka. Þau eru þó ekki fordæmalaus því spænsk stjórnvöld hafa sex sinnum áður veitt slíka sakaruppgjöf fyrir fólk sem dvelur ólöglega í landinu á undanförnum áratugum. Sagðist vilja mikil útskipti á fasistum og rasistum Aðgerðir spænsku ríkisstjórnarinnar fóðra nú samsæriskenningar fjarhægrimanna um meint hrun vestrænnar siðmenningar og „útskipti“ á hvítu og kristnu fólki í vestrænum ríkjum. Kenningin hefur verið kennd við „útskiptin miklu“ og hafa sumir íslenskir stjórnmálamenn talað fyrir henni hér á landi. Musk er einn áhrifamesti boðberi hvítrar þjóðernishyggju af þessu tagi. Hann líkir áformum Spánverja við „þjóðarmorð“. „Hún talar fyrir þjóðarmorði. Algerlega fyrirlitlegt,“ skrifaði Musk á eigin samfélagsmiðli og vísaði til orða spænskrar Evrópuþingkonu sem styður áformin um tímabundnu dvalarleyfin. Skjáskot af ummælum Elons Musk á X um spænska þingkonu.Skjáskot Færsla Musk var svar við hollenskum fjarhægriáhrifavaldi sem deildi orðum Irene Montero, spænsk Evrópuþingmanns, á viðburði í Zaragoza. Þar sagðist Montero aðhyllast eigin kenning um útskiptin miklu „Að sjálfsögðu vil ég að það verði útskipti á fasistum og rasistum,“ hefur spænska dagblaðið El País eftir Montero á viðburðinum. Hún er í forystu vinstriflokksins Við getum. Montero vísaði til Epstein-skjalanna svonefndu þegar hún svaraði Musk fullum hálsi í eigin færslu á X. Á meðal þeirra var tölvupóstur frá Musk þar sem hann sóttist eftir að komast í „villt partí“ á alræmdri einkaeyju bandaríska kynferðisbrotamannsins. X-færsla Irene Montero um Elon Musk og útskiptin miklu.Skjáskot „Auðvitað verður heiðvirt fólk, sem meirihluti mannkynsins er, að skipta þér út. Strax. Svo að þú hættir að nauðga, sprengja, ræna börnum og drepa,“ skrifaði þingkonan.
Spánn Innflytjendamál Elon Musk Tengdar fréttir Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Allt að hálf milljón manna sem dvelja og starfa á Spáni án dvalar- eða atvinnuleyfis gætu fengið tímabundið leyfi ef áform ríkisstjórnar landsins ganga eftir. Aðgerðasinnar og samtök kaþólikka fagna en stjórnarandstaðan fordæmir áformin. 28. janúar 2026 09:50 Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum. 19. janúar 2026 15:55 Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. 15. janúar 2026 08:48 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Allt að hálf milljón manna sem dvelja og starfa á Spáni án dvalar- eða atvinnuleyfis gætu fengið tímabundið leyfi ef áform ríkisstjórnar landsins ganga eftir. Aðgerðasinnar og samtök kaþólikka fagna en stjórnarandstaðan fordæmir áformin. 28. janúar 2026 09:50
Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum. 19. janúar 2026 15:55
Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. 15. janúar 2026 08:48