Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Kjartan Kjartansson skrifar 19. janúar 2026 15:55 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, kynnir sér gervigreindartækning á ráðstefnu í Brussel. Vísir/EPA Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum.
Evrópuþingmenn hafa kallað eftir banni við forritum af þessu tagi. Talsmaður framkvæmdastjórnarinnar segir við dagblaðið Politico að það sé til skoðunar. Forrit sem geta afklætt fólk á myndum eru ekki bönnuð sérstaklega í tilskipun Evrópusambandsins um gervigreind en hún takmarkar notkun tækninnar ef hún ógnar öryggi fólks, réttindum eða lífsviðurværi. „Þetta er klárlega skaði sem menn sáu fyrir sér að væri bannaður undir þeirri notkun sem er bönnuð,“ segir Michael McNamara, írskur Evrópuþingmaður sem stýrir nefnd þingsins um gervigreind. Svokallaðar djúpfalsanir, mjög raunverulegar myndir eða myndbönd sem eru framleidd með gervigreind, eru ekki bannaðar í Evrópu. Aðeins er skylda að merkja slíkt efni þar sem það birtist. Fárið í kringum Grok Djúpfalsarnir eru nú í kastljósinu eftir að X, samfélagsmiðill Elons Musk, leyfði spjallmenni sínu, Grok, að framleiða kynferðislegar myndir af konum og börnum gegn vilja þeirra. Athæfið er nú til rannsóknar í nokkrum löndum, þar á meðal í Bretlandi og Frakklandi. X brást lengi vel ekki við gagnrýninni. Á tímabili lét fyrirtækið nægja að leyfja aðeins áskrifendum að búa til slíkar gervigreindarmyndir, þótt það virtist ekki hafa verið algild regla. Í síðustu viku brást Musk og fyrirtækið við með því að segja að Grok myndi ekki lengur framleiða kynferðislegar myndir af þessu tagi í lögsagnarumdæmum þar sem slíkt væri ólöglegt. Vísbendingar eru um að spjallmennið hafi haldið áfram að búa til slíkar myndir þrátt fyrir þær fullyrðingar Musk.
Evrópusambandið Gervigreind Samfélagsmiðlar X (Twitter) Elon Musk Tækni Kynferðisofbeldi Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira