Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. janúar 2026 17:11 Fjöldi góðra franskra mynda verður sýndur næstu vikuna á franskri kvikmyndahátíð. Franska kvikmyndahátíðin verður haldin í 26. sinn í Bíó Paradís frá 23. janúar til 1. febrúar. Á dagskrá eru tíu franskar kvikmyndir, nýjar í bland við samtímaklassík. Franska leikkonan Isabelle Huppert verður meðal gesta.
Hátíðin er haldin af franska sendiráðinu á Íslandi, Alliance Française í Reykjavík og Bíó Paradís. Meðal sígildra mynda sem verða til sýningar eru glæpamyndin La Haine (1995) og gamanmyndin Amélie (2001) og auk þess verður boðið upp á fjölbreytta viðburði. Kvikmyndirnar tíu sem verða sýndar eru Útlendingurinn (L’Étranger), Ríkasta kona í heimi (La femme la plus riche du monde), Örkin mikla (L’inconnu de la Grande Arche) Stéphane Demoustier, Litla systirin (La petite dernière), Clèves, Saga Souleymanes (L’Histoire de Souleymane), La Haine, Amélie, Píanóslysið (L’Accident de piano) og Maya, gef mér titil (Maya, donne-moi un titre). Franskir heiðursgestir hátíðarinnar verða leikkonan Isabelle Huppert, rithöfundurinn Marie Darrieussecq og leikstjórinn Rodolphe Tissot. Fyrir utan myndirnar allar verða ýmsir skemmtilegir viðburðir, Í kvöld klukkan 18:15 verður „Kvöldstund með Isabelle Huppert“ þar sem Ríkasta kona í heimi verður sýnd í viðurvist leikkonunnnar Isabelle Huppert. Auk þess verður boðið upp á bíókviss með Nilla annað kvöld, sýningu á Útlendingnum á sunnudag með vínsmökkun frá Port 9 eftir sýningu, „Kvöldstund með Marie Darrieussecq og Rodolphe Tissot“ þann 31. janúar með sýningu á Clèves, upplestur úr samnefndri bók og vínsmökkun.
Bíó og sjónvarp Frakkland Kvikmyndahús Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira