Brúðkaup ársins 2025 Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. desember 2025 07:02 2025 var ár ástarinnar hjá mörgum! Vísir/Grafík Árið 2025 var stútfullt af ást og gleði og ófá nýgift hjón ræddu við Vísi um stærsta dag í þeirra lífi. Hér má sjá hvaða einlægu, fallegu og glæsilegu brúðkaup stóðu upp úr frá árinu.
Áslaug Arna stýrði teitinu Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir lögfræðingur giftist ástinni sinni Guðlaugi Steinarri Gíslasyni í Dómkirkjunni í Reykjavík þann 24. maí. Veislan fór fram á gamla Nasa, Áslaug Arna veislustýrði og gestir dönsuðu svo fram á nótt á Uppi bar. Prestur slakasta brúður sögunnar Presturinn Hjördís Perla Rafnsdóttir gekk að eiga sinn heittelskaða, fyrrum fótboltalandsliðskappann og athafnamanninn Kára Árnason, við einstaka athöfn í Cascais í Portúgal í júní. Glæsiteiti í Grikklandi Landsliðsmaðurinn Sverri Ingi Ingason og Hrefna Dís Halldórsdóttir samkvæmisdansari giftu sig við glæsilega athöfn í Aþenu í Grikklandi í sumar. Brúðkaupið fór fram undir berum himni og var ævintýri líkast. Og fótboltakappinn Rúrik Gíslason mætti með kærustuna. Sumarást í Reykjavík og karaoke fram á nótt Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir, viðskiptaráðgjafi hjá KPMG, og hennar heittelskaði Dalmar Ingi Daðason gengu í hjónaband í júní og héldu alvöru miðbæjarbrúðkaup. Sólin var heiðursgestur allan daginn og dagurinn algjörlega fullkominn. Sumarsólstöður á Selfossi Bandaríski áhrifavaldurinn Kyana Sue Powes, sem er búsettur hér á landi, og Viktor Már Snorrason matreiðslumaður létu pússa sig saman við fallega athöfn undir berum himni á Selfossi 21. júní við sumarsólstöður. Táraflóð og tryllingur á Ibiza Búningahönnuðurinn og myndlistarkonan Sylvía Lovetank gekk að eiga sinn heittelskaða Sigga Kjartan leikstjóra og boozbónda í brúðkaupi á Ibiza í júní i bongó blíðu. Hjónin eru miklir kóngar og héldu rosalegt partý á þessari miklu stuðeyju. Algjör sveitasæla á Snæfellsnesi Tískugyðjan Helga Jóhannsdóttir, sem starfar sem þjónustufulltrúi hjá Snæfellsbæ, giftist ástinni sinni Magnúsi Darra Sigurðssyni skipstjóra í einstaklega fallegu sveitabrúðkaupi á Snæfellsnesi í júní. Ástarveisla í plötubúð Rebekka Ellen, nýútskrifaður lögfræðingur, giftist ástinni sinni Loga Má myndlistarmanni í júlí í plötubúð á Skólavörðustíg. Veislan var svo haldin í Ásmundarsal og allt var mjög hipp og kúl. GusGus ómaði um kirkjuna Alexandra Friðfinnsdóttir, viðskiptafræðingur hjá Ölgerðinni í útflutningsteymi COLLAB, giftist Magnúsi Jóhanni Íslandsmeistara í borðtennis, einkaþjálfara og fyrirlesara við glæsilega athöfn og alvöru partý. Hjónin gengu út úr kirkjunni við smellinn Eða með Birni og GusGus. Ítalski draumurinn María Björg Sigurðardóttir, hönnuður og matgæðingur, giftist ástinni sinni Jónas Þór Jónasson, lögmanni, við algjöra draumaathöfn á Ítalíu. Þetta var annað hjónaband þeirra beggja og þau langaði að gera eitthvað óhefðbundið. Borgaði norn fyrir bongó Alexandra Sif, Spotify drottning, og Björn Þórsson athafnamaður búa í New York en komu heim til Íslands í sumar til að gifta sig í almennilegu sveitabrúðkaupi um miðjan júlí. Alexandra borgaði norn fyrir gott veður og það gekk sannarlega upp. Íslensk tónlistarveisla á Nasa Jóhanna Guðrún Jónsdóttir tónlistarkona og Ólafur Friðrik Ólafsson gengu í hjónaband í Hafnarfjarðarkirkju í lok júlí. Gríðarleg stemning var í brúðkaupsveislunni á Nasa og FM95Blö tróðu meðal annars upp. Hellisgerði og stundarkorns sól Þórdís Erla myndlistarkona giftist Kristjáni Jóni Pálssyni hönnuði við draumkennda athöfn í Hellisgerði í júlí. Í sextíu ára gömlum brúðarkjól Hönnuðurinn og plötusnúðurinn Rebekka Ashley sem giftist ástinni sinni Þorkeli Mána Þorkelssyni forritara við dásamlega athöfn í Flatey í mjög svo einstökum sextíu ára gömlum kjól. Þriggja daga tjaldpartý „Það segir manni mikið þegar fólk er til í að sofa í tjöldum og tjaldhýsum, taka þátt í alls konar dagskrá í rigningu, halda samt í gleðina og brosin og leggja sig fram við að búa til ógleymanlegar stundir með okkur,“ sagði hin nýgifta Berglind Jónsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri breska sendiráðsins í samtali við blaðamann eftir að hún giftist Halldóri Arnarssyni sálfræðingi. Náttúrugleði og jelló skot Alexandra Sif Nikulásdóttir, samfélagsmiðlastjóri og förðunarfræðingur, gekk að eiga sinn heittelskaða Arnar Frey Bóasson bifvélavirkja með pomp og prakt í náttúrufegurð í Elliðárdal í lok júlí. Gestir dönsuðu svo fram á nótt við grípandi tóna frá B5 árunum. Stærsta brúðkaupsveislan á Íslandi Nígerísk stjörnuhjón héldu brúðkaup í Hallgrímskirkju í ágúst og létu reisa stærðarinnar glerhýsi í Kleif í Kjós þar sem brúðkaupsveisla var haldin. Hjónin eru hin 29 ára leikkona Temi Otedola og hinn 34 ára Oluwatosin Oluwole Ajibade, sem er betur þekktur undir listamannanafninu Mr. Eazi. Meðal gesta var dansarinn Ástrós Traustadóttir. Mugison og Rúna með litla útiathöfn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur undir listamannanafni sínu Mugison, og Rúna Esradóttir gengu í það heilaga í ágúst við fallega athöfn sem fór fram utandyra í sveitinni. Fegurð í Dómkirkjunni Kolbrún Ellý Björgvinsdóttir, viðurkenndur bókari, giftist sínum heittelskaða, Nikulási Jónssyni lækni, við fallega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík í júní síðastliðnum. Lúðrasveit leiddi hópinn svo í tryllt stuð á gamla Nasa. Skúli hannaði Grímu-hof Brúðkaup Skúla Mogensen athafnamanns og Grímu Bjargar Thorarensen innanhúshönnuðar fór fram í hofi sem Skúli hafði hannað sérstaklega fyrir brúðkaupið. Athöfnin var í Hvammsvík í Hvalfirði þar sem þau hjónin reka sjóböð og ferðamannagistingu. Sænsk-íslenskir prinsar með brúðkaup í kastala Tónlistarmaðurinn Daníel Óliver Nyback gekk að eiga sinn heittelskaða Daniel Mattias Nyback um helgina í hundrað manna teiti í sænskum kastala. Brúðkauð að heiðnum sið Freyja Ragnarsdóttir Pedersen, náttúru- og umhverfisfræðingur, gekk að eiga sinn heittelskaða Matthías Karl Guðmundsson vélfræðing í ágúst að heiðnum sið á Vestfjörðum. Frá New York í Marshall húsið Guðrún Gígja Sigurðardóttir lögfræðingur og Hafsteinn Björn Gunnarsson rekstrarstjóri fluttu heim frá New York í sumar og héldu alvöru Reykjavíkurbrúðkaup. Veislan var í Marshall húsinu og Daníel Ágúst tryllti lýðinn á dansgólfinu. Hjónin segja að þetta hafi óumdeilanlega verið besti dagur lífs þeirra. Þingvellir og Ungverjaland Diljá Helgadóttir lögfræðingur giftist ástinni sinni Snæbirni Helgasyni tvisvar á árinu, fyrst með lítilli athöfn á Þingvöllum og svo með trylltri veislu í Ungverjalandi. Diljá og Snæbjörn glæsileg hjón með tíkina París. Hún ræddi við blaðamann um stóra daginn og sömuleiðis líf þeirra í London. Fullkomnun í frönskum kastala Rós Kristjánsdóttir gullsmiður giftist athafnamanninum Þorstein B. Friðriksson í frönskum kastala í september við gullfallega athöfn. Hún klæddist sérsniðinni íslenskri hönnun í teitinu. Frá Prikinu í Dómkirkjuna Hildur María Haarde giftist Baldri Kára Eyjólfssyni á fallegum og sólríkum degi í lok september í Dómkirkjunni í Reykjavík. Parið kynntist á Prikinu fyrir sautján árum. Giftust aftur Helga Karólína Karlsdóttir, mannauðsstjóri á Landspítalanum giftist ástinni sinni Eini Tyrfingssyni í annað sinn í október og parið hélt algjörlega tryllt teiti í Gufunesi. Besta partý sögunnar? Jóhann Jökull Sveinsson, skólastjóri skíða- og brettaskólans í Bláfjöllum, og Salný Björg Emilsdóttir, sjúkraliði og förðunarfræðingur. Þau giftu sig með pomp og prakt á dögunum þar sem gleðin var óumdeilanlega í fyrirrúmi og hefur blaðamaður sjaldan heyrt af öðru eins fjöri. Í kirkjunni var boðið upp á skot og smá leiksýningu. Fór langt fram úr öllum væntingum Læknirinn Karen Ósk Óskarsdóttir gekk að eiga sína heittelskuðu Elvu Hrafnsdóttur í ágúst við hátíðlega athöfn og stemningsteiti þar sem fólk dansaði fram á rauða nótt.
Brúðkaup Fréttir ársins 2025 Tímamót Ástin og lífið Mest lesið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Tónlist Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Tónlist Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira