Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2025 07:13 Hiti á landinu verður um eða undir frostmarki. Vísir/Anton Brink Það stefnir í meiri vind en verið hefur á landinu undanfarið og er að ganga í norðaustan strekking eða allhvassan vind nokkuð víða.
Á vef Veðurstofunnar segir að það muni slá í storm í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu og hefur verið gefin út gul viðvörun vegna þessa á Suðausturlandi til miðnættis. „Taka skal fram að stærstur hluti höfuðborgarsvæðisins verður væntanlega í skjóli með meinlitlum vindi í dag. Lítil eða engin úrkoma vestanlands, annars staðar má búast við snjókomu eða slyddu með köflum. Hiti um eða undir frostmarki. Á morgun snýst síðan í norðanátt, víða 8-13 m/s, en 13-18 austanlands. Norðanáttin ber kalt heimskautaloft yfir okkur með frosti á bilinu 3 til 8 stig. Búast má við éljum á Norður- og Austurlandi, annars staðar þurrt og bjart veður. Seinnipartinn á morgun lægir vindinn smám saman og annað kvöld stytta élin upp. Þá herðir einnig enn frekar á frostinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan 8-13 m/s, en 13-18 austanlands. Él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan heiða. Frost víða 3 til 8 stig. Lægir smám saman síðdegis og syttir upp um kvöldið og herðir á frosti. Á laugardag: Breytileg átt 3-8, víða bjart í veðri og talsvert frost. Austan 5-10 og snjókoma með köflum á Suðausturlandi og Suðurlandi eftir hádegi. Á sunnudag: Gengur í austan 8-13, en 13-18 með suðurströndinni. Snjókoma eða slydda með köflum, en úrkomulítið vestan- og norðanlands. Frostlaust syðst á landinu, annars frost 0 til 8 stig. Á mánudag (fullveldisdagurinn): Austan og norðaustan 8-15 m/s. Él á austanverðu landinu, slydda eða rigning sunnanlands, en þurrt að kalla á Vestur- og Norðurlandi. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustanátt með dálitlum éljum norðaustan- og austanlands, en léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert. Frost víða 0 til 4 stig.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira