Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Hjörvar Ólafsson skrifar 7. nóvember 2025 20:38 Ivan Gavrilovic var stigahæstur í liði Tindastóls að þessu sinni. Vísir/Pawel Tindastóll vann sannfærandi sigur þegar liðið sótti Ármann heim í sjöttu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í Laugardalshöll í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 77-110 Tindastóli í vil. Tindastóll var sterkari aðilinn í fyrsta leikhluta og byggði þar upp 18 stiga forskot en staðan var 15-33 gestunum í vil eftir fyrsta fjórðung. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls rúllaði liði sínu vel og var ávallt með ferska fætur inni á vellinum. Dedtick Basile sækir á Daniel Love. Vísir/Pawel Ivan Gavrilovic og Sigtryggur Arnar Björnsson hófu til að mynda leikinn á varamannabekknum en Ivan kom inn af bekknum og skoraði 17 stig í fyrri hálfleik og Sigtryggur Arnar níu stig. Það var í raun ljóst allt frá upphafi hvoru megin sigurinn myndi lenda en leikmenn Ármanns náðu nokkrum dauðakippum í seinni hálfleik. Munurinn fór minnst niður í 16 stig í þriðja leikluta. Daniel Love kemst framhjá Davis Geks. Vísir/Pawel Þá tóku gestirnir frá Sauðárkróki aftur við sér og niðurstaðn varð öruggur og þægilegur 33 stiga sigur Tindastóls sem hefur 10 stig líkt og Grindavík á toppi deildarinnar. Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, fer yfir málin með leikmönnum sínum. Vísir/Pawel Steinar Kaldal: Vantaði sjálfstraust í aðgerðir okkar „Við mættum mjög flatir inn í þennan leik og það vantaði allt sjálfstraust í það sem við vorum að gera í sóknarleiknum. Við vorum að koma okkur í góð skotfæri en það vantaði alla trú í skotin hjá okkur,“ sagði Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, að leik loknum. „Þeir náðu fljótt góðu forskoti sem þeir létu aldrei af hendi. Við breyttum aðeins um varnarafbrigði í seinni hálfleik og það gekk aðeins betur upp. Við náðum að minnka muninn aðeins en það var ekki nóg,“ sagði Steinar enn fremur. „Það voru nokkrir leikmenn ólíkir sjálfum sér og eins og ég sagði áðan þá náðum við ekki að klára góðar sóknir okkar með almennilegum skotum,“ sagði hann. „Mér fannst þetta í fyrsta skipti þar sem ég tók eftir því að sjálfstraustið væri ekki nógu gott og við vorum litlir í okkur. Nú þurfum við að finna aftur trúna og snúa bökum saman fyrir næsta leik,“ sagði Steinar um framhaldið. Arnar Guðjónsson: Mér fannst þetta hundleiðinlegur leikur „Ef ég á að segja alveg eins og er þá fannst mér þetta alveg hundleiðinlegur leikur. Við unnum hann bara af því að við erum með betri leikmenn. Það vantaði allan strúktúr og frammistaðan hjá okkur var alls ekki nógu góð,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, með óbragð í munninum þrátt fyrir sigurinn. „Þeir hittu illa og það bjargaði því að þeir næðu ekki að nálgast okkur meira en þeir gerðu. Það var ekki góð frammistaða okkar sem skilaði þessum sigri. Heldur bara það að einstaklingsgæðin okkar eru meiri,“ sagði Arnar þar að auki. „Þetta endaði bara í einhverjum pick up bolta sem er ekki mér að skapi. Það var enginn agi og framkvæmdin á því sem við ætluðum að gera var bara heilt yfir sloppy. Við þurfum að gera töluvert betur í næsta leik ef vel á að fara,“ sagði hann. „Við gerðum nokkrar tilraunir á báðum endum vallarins í þessum leik og það tókst ágætlega. Við þurfum hins vegar að drilla það aðeins betur á æfingum og skerpa á nokkrum hlutum. Svona spilamennska mun ekki skila neinu í komandi leikjum,“ sagði Arnar um næstu verkefni Stólanna. Arnar Guðjónsson var ekki sáttur við lærisveina sína. Vísir/Pawel Atvik leiksins Huggulegt alley-oop troðsla Dedrick Basile og Taiwo Badmus gladdi augað mest í þessum leik. Þá sýndi Daniel Love líka skemmtileg tilþrif þegar hann tróð með stæl. Taiwo Badmus tróð með tilþrifum eftir sendingu frá Dedrick Basile. Vísir/Pawel Stjörnur og skúrkar Jöfn og góð frammistaða skilaði þessum sigri hjá Tindastóli en Ivan Gavrilovic og Sigtryggur Arnar Björnsson voru stigahæstir en Ivan setti niður 23 stig og Sigtryggur Arnaron lagðu 22 stig í púkkinn. Líkt og áður var Bragi Guðmundsson fremstur á meðal jafningja í liði Ármanns en hann skoraði 24 stig í þessum leik og var stigahæstur á vellinum. Arnaldur Grímsson, Daniel Love og Marek Dolezaj áttu einnig góðar rispur. Bragi Guðmundsson og Sigtryggur Arnar BJörnsson háðu margar rimmur í leiknum. Vísir/Pawel Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Jóhannes Páll Friðriksson, Jakob Árni Ísleifsson og Guðmundur Ragnar Björnsson höfðu góð tök á þessum leik og fá sjö í einkunn fyrir vel unnin störf sín. Dómaratríóið fékk góða einkunn í kladdann. Vísir/Pawel Stemming og umgjörð Það var fínasta stemming í Laugardalshöllinni i kvöld og sjálfboðaliðar Ármanns boðnir og búnir til þess að hafa umgjörðina eins og best verður á kosið fyrir alla þá sem koma að leiknum. Marek Dolezaj setti niður þrjú af fjórum þriggja stiga skotum sínum. Vísir/Pawel Bónus-deild karla Ármann Tindastóll