Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 6. nóvember 2025 18:33 Sigurður Pétursson og KJ eigast við. Pawel Cieslikiewicz Álftanes sigraði KR 108-89 í 6. umferð Bónus-deild karla í kvöld. KR-ingar byrjuðu leikinn af krafti en Álftnesingar snéru leiknum við í seinni hálfleik. KR-ingar sem voru án tveggja lykilleikmanna í kvöld, byrjuðu leikinn af krafti og voru öflugri aðilinn í fyrsta leikhluta. 23-27 var staðan og leiddu gestirnir með fjórum stigum. Annar leikhluti var nokkuð jafn og kaflaskiptur en KR var með yfirhöndina. KR leiddi með einu stigi eftir tvo leikhluta en Álftanes tók svo yfir leikinn í þriðja leikhluta. Álftanesi tókst að breikka bilið og vann svo sannfærandi sigur 108-89. Stjörnur og skúrkar Kenneth Jamar Doucet JR öflugur fyrir KR í kvöld með 34 stig. Tóti Turbo leikstýrði liðinu eins og herforingji og var einn mikilvægasti leikmaður KR í þessa vængbrotna liði í kvöld. Ade Murkey var stigahæstur í liði Álftnesinga með 28 stig, 5 stoðsendingar og 9 fráköst. Sigurður Pétursson var svo með 26 stig og 11 fráköst og átti frábæra frammistöðu í kvöld. Stemning og umgjörð Frábær stemning á Álftanesi og mjög fín mæting. Dómarar Gunnlaugur Briem, Birgir Örn Hjörvarsson og Sófus Máni Bender voru dómarar kvöldsins. Ekkert út á dómgæsluna að setja, 7 í einkunn frá mér. Dómarar kvöldsins stóðu sig með prýði.Pawel Cieslikiewicz Viðtöl Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR. Ánægður með margt en ekki allt.Pawel Cieslikiewicz „Við vorum góðir í fyrri hálfleik og sérstaklega sóknarlega. Álftanes aðlagaði sig varnarlega eftir því hvaða leikmenn við vorum með inn á og hvaða leikmenn vantaði hjá okkur. Við áttum erfiðara með að finna opin skot og lausnir sóknarlega.“ „Ég var mjög ánægður með strákana og margt sem við gerðum. Ég er ekki sáttur við öll hraða upphlaupin sem Álftanes gerði á okkur, að við vorum ekki klárari og slúttuðum ekki betur í sókninni. Við vorum svo bæði ekki nógu snöggir til baka og vorum ekki klárir í að stöðva hraðaupphlaupin.“ „Þetta er svona helst núna það sem ég hugsa að við hefðum getað gert betur. En hugarfarið og áræðnin var ég að mestu leyti sáttur við.“ Bónus-deild karla UMF Álftanes KR