Með bílinn fullan af fíkniefnum Samúel Karl Ólason skrifar 28. september 2025 07:18 Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt. Vísir/Sammi Lögregluþjónar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu í ökumann í gærkvöldi vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefnis. Svo reyndist vera en vöknuðu einnig grunsemdir um að hann væri með fíkniefni í bílnum.
Í dagbók lögreglu segir að töluvert magn efna, sem talin eru fíkniefni, hafi fundist í bílnum og að einnig hafi fundist gögn sem bentu til að maður stundaði sölu og dreifingu fíkniefna. Þá var leitað á heimili mannsins þar sem peningar fundust og meira af fíkniefnum. Maðurinn var færður í fangaklefa. Í dagbók lögreglunnar segir að alls hafi 83 mál verið skráð í kerfi lögreglu frá fimm í gær til fimm í morgun og átta hafi gist í fangageymslu í nótt. Starfsfólk hótels í miðbænum óskaði í nótt eftir aðstoð lögreglu vegna gests sem var ósáttur við þjónustu þar og með læti. Í öðru tilfelli var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi á gistiheimili en hann hafði sett brunakerfi staðarins í gang. Við það flæddi vatn út um allt og varð töluvert eignatjón. Maðurinn var handtekinn. Úr miðbænum barst að minnsta kosti ein tilkynning um líkamsárás og er einn grunaður um að hafa brotið rúðu í verslun en hann gat illa gert grein fyrir sér vegna ölvunar. Í heildina voru að minnsta kosti tíu ökumenn stöðvaðir vegna aksturs undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Nokkrir þeirra höfðu áður verið sviptir ökuréttindum. Tveir voru kærðir fyrir hraðakstur en annar þeirra var mældur á 130 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er áttatíu.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Næturlíf Reykjavík Umferð Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Sjá meira