Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar 10. júlí 2025 16:03 Á Facebook síðu Flugvarpsins skrifar Jóhannes Bjarni Guðmundsson um Menntasjóð Námsmanna og ECTS einingarnar sem eru "kerfisleg hindrun" fyrir þá sem stefna á flugið sem starfsréttindi. „Í tilefni af umræðu síðustu misseri og m.a. í nýlegum þætti Flugvarpsins um flugnám og stöðu þess í menntakerfinu er rétt að eftirfarandi komi fram; Um nokkurra ára skeið hefur samtvinnað nám til atvinnuflugmanns (ATPL réttindi) verið metið til 120 ECTS eininga hjá Menntasjóði námsmanna. Sjóðurinn lánar fyrir bóklegu og verklegu flugnámi sem skilgreint er fjórar annir, tvær í bóklegu og tvær í verklegu námi. Upphæðin sem Menntasjóður lánar er hins vegar í engu samræmi við kostnaðinn. Reglur Menntasjóðsins gera ráð fyrir því að hámarks skólagjaldalán sé 4,8 milljónir og þá miðað við 6 annir í 3 ára námi á háskólastigi. Af þessum sökum fær nemandi í flugnámi í hæsta lagi 2/3 af þessari hámarksupphæð þar sem námið er skilgreint á 4 annir en ekki 6. Það þýðir að nemandi í flugnámi fær að hámarki 3,2 milljónir króna upp í skólagjöld. Þessu til viðbótar er hægt að sækja um framfærslulán til Menntasjóðs á meðan á námi stendur og ef nemandi býr í foreldrahúsum má reikna með um 100.000kr á mánuði í þessar 4 annir samtals um 2 milljónir króna. Heildarlánið sem er í boði er þannig um það bil 5,2 milljónir króna hjá Menntasjóði námsmanna samkvæmt þessu dæmi.“ - JBG Þetta dugar skammt... Matthías Arngrímsson Af þessu má glöggt sjá að flugnemum er alvarlega mismunað eftir námsleiðum annars vegar og gagnvart nemendum í annars konar námi hins vegar. Ekki beint „jafnrétti til náms.“ Þetta er einstaklega ósanngjarnt og mikilvægt að leiðrétta þessa mismunun hratt og myndarlega. Það er ámælisvert að flugnemi með gott fjárhagslegt bakland skuli geta lokið sínu flugnámi hratt og vel, meðan sá sem ekkert hefur baklandið getur aðeins látið sig dreyma um námið, þar sem Menntasjóður lánar ekki fyrir verklega hlutanum eins og þarf. Flestir nemendur þurfa annað hvort að treysta á stuðning ættingja sem hafa skuldsett sig frekar til að hjálpa, eða taka "neyslulán" á háum vöxtum hjá bönkunum. Einnig má minnast á að nám til skipstjórnarréttinda er að fullu námslánahæft. Innviðaráðuneytið eða Mennta- og barnamálaráðuneytið „Þess má geta að 1. júlí s.l. auglýsti Mennta- og barnamálaráðuneytið eftir umsóknum frá flugskólum á Íslandi um styrki til þess að halda úti bóklegum hluta náms til atvinnuflugmannsréttinda. Heildarúthlutun mun samkvæmt frétt á vef Stjórnarráðsins nema allt að 30 milljónum króna og tekur eins og áður sagði eingöngu til bóklega hluta námsins.“ - JBG. Þetta má kalla jákvæðar fréttir, en samt byrjað á öfugum enda því flugnemar fá enga leiðréttingu í námslánakerfinu. Flugnám hefur hingað til heyrt undir Innviðaráðuneytið og hafa margir verið ósáttir við að flugnám skuli hafa verið olnbogabarn í menntakerfi landsmanna. Því þarf að breyta með því að efla flugnám í landinu og styðja við flugnema á jafnréttisgrundvelli, en ekki eingöngu styrkja skólana sem kenna til atvinnuflugmannsréttinda. Það þýðir lítið að styrkja suma skóla ef það vantar nemendur sem fá ekki nægileg námslán fyrir kostnaði námsins. Flugnemar á Reykjavíkurflugvelli ásamt Petter Hörnfeldt flugstjóra - Mynd: Una Gísladóttir Sömuleiðis á að gera flugskólunum auðveldara að efla sína starfsemi sem fyrir utan grunnkennsluna hefur verið að viðhalda og endurnýja réttindi flugmanna og flugkennara á öllum aldri um allt land. Flugskólarnir hafa verið þeim stoð og stytta í endurþjálfun fyrir próf Samgöngustofu og hefur sá þáttur starfseminnar auðveldað flugmönnum að halda úti flugklúbbum og félagsstarfsemi í fluginu á Íslandi, grasrótinni sem er grunnstoð alls flugs í landinu. Höfundur er flugkennari, skólastjóri flugskóla og starfandi flugstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skóla- og menntamál Fréttir af flugi Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar