Lífið

Þessi vilja verða safn­stjóri Lista­safns Reykja­víkur

Agnar Már Másson skrifar
Ráðið er í starfið til fimm ára í senn.
Ráðið er í starfið til fimm ára í senn.

Sjö manns sóttu um stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur sem auglýst var á dögunum. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Umsækjendurnir eru eftirfarandi:

  • Alma Dís Kristinsdóttir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar og doktor í safnafræði
  • Anne Herzog, list- og verkgreinakennari
  • Björg Erlingsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Svalbarðsströnd
  • Ingi Rafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Slize.me og fyrrverandi framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík
  • Kári Finnsson, listfræðingur og forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Creditinfo
  • Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar á Listasafni Reykjavíkur

Sá sem verður ráðinn tekur við af Ólöfu Kristínu Sigurðardóttur, sem hefur verið safnstjóri síðustu tíu ár. 

Ráðið er í stöðuna til fimm ára í senn. Að fimm árum loknum er sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs heimilt að framlengja ráðningu safnstjóra einu sinni til næstu fimm ára, að höfðu samráði við menningar-, íþrótta- og tómstundaráð. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.